Búast má við miklum fjölda í sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík næstu daga
Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu og mun hann sjást vel frá Snæfellsbæ. Stór hátíð, Iceland Eclipse, er jafnframt haldin á Hellissandi í tilefni myrkvans og búist er við að töluverður fjöldi muni leggja leið sína til Snæfellsbæjar bæði þennan eina dag og nærliggjandi daga.
Búast má við miklum fjölda gesta í sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík frá 9. - 16. ágúst og mun því reyna verulegu á innviði og starfsfólk.
Snæfellsbær hefur sett upp bókunarkerfi þar sem hátíðargestir Iceland Eclipse geta bókað tíma í sund fyrir sig. Er þetta gert til að anna álagi og koma í veg fyrir örtröð myndist í laugina þar sem gestir hátíðarinnar hlaupa á þúsundum. Leyfilegur hámarksfjöldi í sundlaugina hverju sinni er margfalt minni.
Að gefnu tilefni vill Snæfellsbær því koma á framfæri að sundlaugin verður opin öllum, íbúum jafnt sem öðrum gestum, en fastagestir í laugina mega hins vegar búast við fjöldatakmörkunum á áðurnefndum dagsetningum og að starfsfólk hleypi mögulega inn í hollum.
Við hvetjum gesti til að sýna þolinmæði, tillitssemi og hafa í huga að mögulega verður meira álag en venjulega.