Breytt fyrirkomulag við leigu á félagsheimilinu Röst á Hellissandi

Um áramótin tóku gildi breytingar við leigu á Félagsheimilinu Röst á Hellissandi.

Breytingin felst í því að vínveitingarleyfi fylgir ekki lengur húsinu. Leigjendur þurfa því að sækja um tækifærisleyfi til Sýslumanns ef fyrirhugað er að selja aðgang að viðburði í húsinu og/eða að fyrirhugað sé að veita áfengi í söluskyni á viðburðum í húsinu.

Nánari upplýsingar um skilmála tækifærisleyfa má nálgast hjá Sýslumanni.

Vinsamlega athugið að engin breyting er á fyrirkomulagi leigu vegna viðburða í Félagsheimilinu Röst ef hvorki á að selja aðgang að viðburði né veita áfengi í söluskyni.


Félagsheimilið Röst er fallegt félagsheimili á Hellissandi. Húsið hentar vel fyrir árshátíðir, veislur, tónleika og aðrar samkomur.

Í Röstinni eru tveir salir og eldhús.

  • Stór salur með sviði.
  • Minni salur sem hægt er að samnýta með stóra salnum eða halda fundi og minni veislur.

Nánar: