Bilun hjá Microsoft hefur áhrif á starfsemi Snæfellsbæjar
13.11.2026 |
Fréttir
Nú stendur yfir bilun í þjónustu Microsoft sem hefur víðtæk áhrif á notendur víða um heim. Bilunin hefur meðal annars þau áhrif að tölvupóstþjónusta liggur niðri hjá Snæfellsbæ og Grunnskóla Snæfellsbæjar, auk þess sem hún getur haft áhrif á aðrar þjónustur og kerfi.
Við treystum á að málið leysist innan skamms og þjónusta komist aftur í eðlilegt horf.