Bætt þjónusta og lengri opnun í Lýsulaugum yfir sumartímann

Snæfellsbær mætir eftirspurn og bætir þjónustu með rýmri opnunartíma í Lýsulaugum yfir sumartímann.

Lýsulaugar eru einstök náttúru- og grænþörungslaug í Staðarsveit með heitu, náttúrulegu ölkelduvatni. Í Lýsulaugum er hægt að næra líkama og sál í sundlaug, heitum pottum og köldum potti með óviðjafnanlegu útsýni yfir fjallgarðinn og til Snæfellsjökuls.

Á undanförnum þremur árum hefur gestafjöldi aukist um 38,5% og ætlar starfsfólks Lýsulauga að mæta aukinni aðsókn með lengri opnunartíma í ár.

Lengri opnun Lýsulauga árið 2026:

Lýsulaugar opna óvenju snemma, föstudaginn 15. maí, og verða opnar til 31. ágúst. Það verður opið alla daga á þessu tímabili á eftirfarandi tímum:

  • Alla daga frá kl. 11:00 - 21:00
  • Föstudaga frá kl. 11:00 - 23:30.

Við minnum á að afsláttarkort gilda hvort tveggja í sundlaugina í Ólafsvík og Lýsulaugar og að börnum yngri en tíu ára er óheimilt að fara í laugina nema í fylgd með syndnum einstaklingi sem er 15 ára eða eldri.