Bæjarstjórnarfundur 9. apríl 2026
09.04.2026 |
Fréttir
Vakin er athygli á því að 400. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 16:00.
Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru íbúar hvattir til að kynna sér bæjarmálin. Dagskrá fundar má sjá hér að neðan. Fundarboð má nálgast hér.
Dagskrá fundar:
- Fundargerð 365. fundar bæjarráðs Snæfellsbæjar, dags. 19. mars 2026.
- Fundargerð 366. fundar bæjarráðs Snæfellsbæjar, dags. 9. apríl 2026. Lögð fram á fundinum.
- Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hana fyrir árið 2025. Endurskoðendur mæta á fundinn.
- Sorpmál í Snæfellsbæ. Smári Jónas Lúðvíksson mætir á fundinn.
- Fundargerð 200. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, 27. mars 2026.
- Fundargerð fræðslunefndar, dags. 23. mars 2026.
- Fundargerð 23. fundar öldungaráðs, dags. 24. mars 2026.
- Fundargerðir 3. og 4. fundar stýrihóps um menntastefnu Snæfellsbæjar, dags. 12. febrúar og 13. mars 2026.
- Fundargerðir 240. og 241. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 20. janúar og 24. febrúar 2026.
- Fundargerð 201. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands, dags. 23. mars 2026.
- Fundargerðir 994., 995. og 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 3. mars, 10. mars og 20. mars 2026.
- Minnisblað starfshóps um mat á þörf á nýrri slökkvibifreið, dags. 27. mars 2026.
- Bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi, dags. 26. mars 2026, varðandi ósk um umsögn bæjarstjórnar um umsókn Hellisbrautar ehf., um leyfi til að reka veitingastað í flokki II, veitingasala og greiðasala, að Hellisbraut 18 á Hellissandi, Snæfellsbæ.
- Bréf frá Samkeppniseftirlitinu, dags. 26. mars 2026, varðandi niðurstöðu vinnustofu og ráðstefnu um opinber innkaup.
- Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands, dags. 28. mars 2026.
- Minnispunktar bæjarstjóra.
Snæfellsbæ, 31. mars 2026.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri