Bæjarstjórnarfundur 8. maí 2025 kl. 11:30
06.05.2025 |
Fréttir
Vakin er athygli á því að 391. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 8. maí 2025 kl. 11:30.
Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru íbúar hvattir til að kynna sér bæjarmálin. Dagskrá fundar má sjá hér að neðan. Fundarboð má nálgast hér.
Dagskrá fundar:
- Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2024. Seinni umræða. Endurskoðendur mæta á fundinn.
- Fundargerð 28. fundar framkvæmdateymis Snæfellsbæjar, dags. 6. maí 2025.
- Fundargerð 70. stjórnarfundar Jeratúns, dags. 25. apríl 2025.
- Fundargerðir 973., 974., 975., 976., 977. og 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélags, dags. 14. mars, 19. mars, 20. mars, 4. apríl, 11. apríl og 30. apríl 2025.
- Fundargerðir 470. og 471. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, dags. 19. febrúar og 28. mars 2025.
- Fundargerðir 85., 86., 87. og 88. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, dags. 19. mars, 28. mars, 1. apríl og 15. apríl.
- Fundargerð 80. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, dags. 12. mars 2025.
- Aðalfundarboð Nýsköpunarnets Vesturlands, dags. 6. maí 2025.
- Bréf frá verkefnastjóra Umhverfisvottunar Snæfellsness, dags. 7. mars 2025, varðandi ábyrgðaraðila Snæfellsbæjar vegna aðgerðaráætlunar um sjálfbærnistefnu Snæfellsness og næstu skref sveitarfélagsins.
- Bréf frá Félagsmiðstöðinni Afdrep, varðandi ósk um styrk vegna Ævintýranámskeiðs 2025.
- Bréf frá Sýslumanninum á Vesturandi, dags. 16. apríl 2025, varðandi ósk um umsögn bæjarstjórnar um umsókn Matarlistans ehf., um veitingaleyfi í flokki II, veitingahús, að Grundarbraut 2 í Ólafsvík, Snæfellsbæ.
- Bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi, dags. 23. apríl 2025, varðandi ósk um umsögn bæjarstjórnar um umsókn Sker Restaurant ehf., um gistileyfi í flokki II, stærra gistiheimili, að Ólafsbraut 19 í Ólafsvík, Snæfellsbæ.
- Bréf frá Hildigunni Haraldsdóttur, dags. 5. maí 2025, varðandi skráningu landamerkja jarðanna Bjarnarfosskots og Kálfárvalla í Staðarsveit.
- Forvarnarstefna Snæfellsness 2025-2026 - í málefnum barna til 25 ár aldurs.
- Íþrótta- og tómstundastefna Snæfellsbæjar 2025-2027.
- Bréf frá Skógfræðingafélagi Íslands, dags. 23. apríl 2025, varðandi ályktun aðalfundar félagsins.
- Þakkarbréf frá Héraðsþingi HSH, dags. 16. apríl 2025.
- Minnispunktar bæjarstjóra.
Snæfellsbæ, 6. maí 2025
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri