Bæjarstjórnarfundur 7. maí 2026
05.05.2026 |
Fréttir
Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru íbúar hvattir til að kynna sér bæjarmálin.
Dagskrá fundar má sjá hér að neðan. Fundarboð má nálgast hér.
Dagskrá bæjarstjórnarfundarins:
- Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2025. Endurskoðendur mæta á fundinn.
- Fundargerð 367. fundar bæjarráðs Snæfellsbæjar, dags. 22. apríl 2026
- Fundargerð 201. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 30. apríl 2026.
- Fundargerð fræðslunefndar, dags. 23. mars 2026.
- Fundargerð 106. fundar íþrótta- og æskulýðsnefndar, dags. 9. apríl 2026.
- Fundargerð 107. fundar íþrótta- og æskulýðsnefndar, dags. 29. apríl 2026.
- Fundargerð 7. fundar rekstrarnefndar Klifs, dags. 26. apríl 2026.
- Fundargerð 11. fundar velferðarnefndar, dags. 26. apríl 2026.
- Fundargerð 34. fundar framkvæmdateymis Snæfellsbæjar, dags. 5. maí 2026.
- Fundargerð aðalfundar Sorpurðunar Vesturlands, dags. 25. mars 2026, ásamt skýrslu stjórnar.
- Fundargerðir 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 317. apríl 2026.
- Fundargerðir 94., 95., 96. og 97. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, dags. 23. janúar, 20. febrúar, 3. mars og 8. apríl 2026.
- Fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, dags. 17. mars 2026.
- Tillaga frá Halldóru Kristínu Unnarsdóttur, dags. 10. apríl 2026, um nýtingu félagsheimilisins Rastar fyrir börn og ungmenni.
- Áskorun frá forvarnarteymi Snæfellsness, vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí n.k.
- Bréf frá Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum, dags. 8. apríl 2026, varðandi annars vegar drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga og hins vegar varðandi breytingar á raforkulögum.
- Bréf frá Sýslumanninum á Vesturlandi, dags. 4. maí 2026, varðandi ósk um umsögn bæjarstjórnar um umsókn Welcome Iceland ehf., um leyfi til að reka gististað í flokki II, stærra gistiheimili, að Hafnargötu 11 í Rifi, Snæfellsbæ.
- Bréf frá Þjóðkirkjunni, dags. 27. apríl 2026, varðandi ályktun um leiðréttingu sóknargjalda.
- Samþykktir Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga bs. – fyrri umræða í bæjarstjórn eftir samþykkt í ráðuneytunum.
- Minnispunktar bæjarstjóra.
Snæfellsbæ. 5. maí 2026
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri