Bæjarstjórnarfundur 5. febrúar 2026
03.02.2026 |
Fréttir
Vakin er athygli á því að 398. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 5. febrúar 2026 kl. 16:00.
Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru íbúar hvattir til að kynna sér bæjarmálin. Dagskrá fundar má sjá hér að neðan. Fundarboð má nálgast hér.
Dagskrá fundar:
- Hollvinafélag Pakkhússins. Jenný Guðmundsdóttir mætir á fundinn og fylgir erindinu eftir.
- Ungmennaráð Snæfellsbæjar.
- Ingveldur Eyþórsdóttir, forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, mætir á fundinn.
- Frístundasvæði á Hellissandi. Gunnþóra Guðmundsdóttir mætir á fundinn.
- Fundargerð 363. fundar bæjarráðs, dags. 21. janúar 2026.
- Fundargerð fræðslunefndar, dags. 19. janúar 2026.
- Fundargerð menningarnefndar, dags. 3. febrúar 2026.
- Fundargerð stýrihóps um gerð nýrrar menntastefnu, dags. 12. janúar 2026.
- Fundargerðir ungmennaráðs, dags. 26. nóvember, 5. og 6. desember 2025 og 28. janúar 2026.
- Fundargerð 152. fundar hafnarstjórnar, dags. 31. janúar 2026.
- Fundargerð 32. fundar framkvæmdateymis Snæfellsbæjar, dags. 27. janúar 2026.
- Fundargerð 239. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 12. desember 2025.
- Fundargerð 476., 477. og 478. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, dags. 22. október, 18. nóvember og 3. desember 2025.
- Fundargerð 479. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, dags. 19. janúar 2026.
- Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 23. janúar 2026.
- Fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, dags. 21. janúar 2026.
- Bréf frá Atlantsflugi ehf, dags. 2 febrúar 2026, varðandi hvatningu til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar.
- Minnispunktar bæjarstjóra.
Snæfellsbæ, 3. febrúar 2026
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri