Bæjarstjórnarfundur 4. júní 2026
03.06.2026 |
Fréttir
Vakin er athygli á því að 402. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 4. júní 2026 kl. 16:00.
Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru íbúar hvattir til að kynna sér bæjarmálin. Dagskrá fundar má sjá hér að neðan. Fundarboð má nálgast hér.
Dagskrá fundar:
- Kosning forseta bæjarstjórnar til eins árs.
- Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs.
- Kosning þriggja aðila og jafnmargra til vara í bæjarráð til eins árs.
- Kosning þriggja aðalmanna og jafnmargra til vara í yfirkjörstjórn til fjögurra ára.
- Kosning aðal- og varamanna í nefndir og ráð Snæfellsbæjar til fjögurra ára.
- Ráðning bæjarstjóra.
- Prókúruumboð bæjarstjóra og bæjarritara.
- Siðareglur kjörinna fulltrúa í Snæfellsbæ.
- Fundargerð 368. fundar bæjarráðs Snæfellsbæjar, dags. 21. maí 2026.
- Fundargerð 35. fundar framkvæmdateymis Snæfellsbæjar, dags. 2. júní 2026.
- Fundargerð 202. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 28. maí 2026.
- Fundargerð stjórnar Dvalarheimilisins Jaðars, dags. 12. maí 2026.
- Fundargerð 153. fundar hafnarstjórnar, dags. 12. maí 2026.
- Fundargerð fræðslunefndar, dags. 18. maí 2026.
- Fundargerð 202. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands, dags. 18. maí 2026.
- Fundargerð 242. fundar Breiðfjarðarnefndar, dags. 26. mars 2026.
- Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. maí 2026.
- Fundargerð 482. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, dags. 13. apríl 2026.
- Fundarboð á aukaaðalfund SSV 2026, dags. 1. júlí 2026.
- Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 11. maí 2026, varðandi Landsþing Sambandsins og landsþingsfulltrúa.
- Menntastefna Snæfellsbæjar 2026-2031.
- Innleiðing menntastefnu Snæfellsbæjar 2026-2031.
- Bréf frá Maggýju Hrönn Hermannsdóttur, dags. 18. maí 2026, varðandi lóðarleigusamning um Dalbæ.
- Bréf frá Skógræktar- og landverndarfélaginu undir Jökli, dags. 27. maí 2026, varðandi frisbígolfvöll í Tröðinni á Hellissandi.
- Bréf frá EBÍ, dags. 2. apríl 2026, varðandi tillögu að nýjum samþykktum fyrir Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands.
- Samþykktir Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga bs. - seinni umræða í bæjarstjórn eftir samþykkt í ráðuneytum.
- Umboð til bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.
- Minnispunktar bæjarstjóra.
Snæfellsbæ 31. maí 2026
Júníana Björg Óttarsdóttir