Bæjarstjórnarfundur 12. nóvember 2026

Vakin er athygli á því að 405. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 12. nóvember 2026 kl. 17:00.

Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru íbúar hvattir til að kynna sér bæjarmálin. Dagskrá fundar má sjá hér að neðan. Fundarboð má nálgast hér.

Dagskrá fundar:

  1. Menningarnefnd. Yfirferð og spjall.
  2. Fundargerð 373. fundar bæjarráðs Snæfellsbæjar, dags. 9. nóvember 2026.
  3. Fundargerð 206. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 31. október 2026.
  4. Fundargerð stjórnar Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars, dags. 29. október 2026.
  5. Fundargerð 24. fundar öldungaráðs, dags. 12. október 2026.
  6. Fundargerð rekstrarnefndar Félagsheimilisins á Lýsuhóli, dags. 16. október 2026.
  7. Fundargerð menningarnefndar, dags. 12. október 2026.
  8. Fundargerðir 244. fundar og 245. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 23. júní og 31. ágúst 2026.
  9. Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 23. september 2026.
  10. Fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. október 2026.
  11. Bréf frá bæjarritara, dags. 14. október 2026, varðandi afslátt gatnagerðargjalda.
  12. Bréf frá bæjarritara, dags. 14. október 2026, varðandi frístundastyrk 2027.
  13. Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2027. Fyrri umræða.
  14. Þriggja ára áætlun Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árin 2028-2030. Fyrri umræða.
  15. Minnispunktar bæjarstjóra.

Snæfellsbæ, 9. nóvember 2026

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri