Aukinn stuðningur við barnafjölskyldur í Snæfellsbæ - frístundastyrkur hækkar verulega

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundinum sínum í gær að hækka frístundastyrk verulega frá og með áramótum.

Frístundastyrkur var fyrst tekinn upp hjá Snæfellsbæ árið 2019 og hljóðaði þá upp á 20.000 krónur á ári og gilti til niðurgreiðslu þátttökugjalda í skipulögðu íþrótta- og tómstundarstarfi barna og unglinga á aldrinum 5 - 18 ára. Í janúar 2024 var aldursbil breikkað og styrkurinn ætlaður 0 – 20 ára börnum og ungmennum í Snæfellsbæ.

Frístundastyrkurinn hefur undanfarin ár hækkað miðað við launavísitölu og ef sú aðferð væri notuð áfram fyrir árið 2027 yrði frístundastyrkurinn kr. 39.800.

Á fundinum í gær samþykkti bæjarstjórn Snæfellsbæjar hins vegar tillögu bæjarritara um að hækka frístundastyrk upp í 50.000 krónur fyrir hvert barn, eða um rúm 35%.

Markmið með frístundastyrknum er að hvetja börn og ungmenni til þátttöku í skipulögðu frístundastarfi í Snæfellsbæ og veita þeim tækifæri til þess óháð efnahag og félagslegum aðstæðum.

Hækkun frístundastyrksins fellur vel að nýlegri ákvörðun bæjarstjórnar að lækka dvalargjald í leikskóla um 50% frá áramótum, en hvort tveggja endurspeglar skýra áherslu á að styðja við barnafjölskyldur og bæta hag heimilanna í Snæfellsbæ.