Auður Kjartansdóttir er nýr forseti bæjarstjórnar

Á bæjarstjórnarfundi fimmtudaginn 5. júní var Auður Kjartansdóttir kjörinn nýr forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar til eins árs.

Auður tekur við keflinu af Birni H. Hilmarssyni sem hefur verið forseti bæjarstjórnar frá 2017.

Breytingin hefur jafnframt í för með sér breytingu á bæjarráði, en Björn H. Hilmarsson tekur sæti Auðar Kjartansdóttur í ráðinu.