Ársreikningur samþykktur samhljóða - góð afkoma árið 2024
Ársreikningur Snæfellsbæjar var samþykktur samhljóða á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku eftir síðari umræðu og kom rekstur Snæfellsbæjar mun betur út en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
Afkoma Snæfellsbæjar var jákvæð um 437 milljónir króna og verður fjárhagsstaða Snæfellsbæjar því að teljast afar góð.
Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar, sem eru: Félagsheimilið Klifi, Félagsheimilið Röst, Veitustofnanir Snæfellsbæjar, Hafnarsjóður Snæfellsbæjar, Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar, Leiguíbúðir með hlutareign og Dvalarheimilið Jaðar.
Rekstur Snæfellsbæjar kom mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var rekstur samstæðunnar jákvæður um 436,9 m.kr., en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á um 167 m.kr.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 239 m.kr.
Snæfellsbær fjárfesti á árinu 2024 fyrir um 598 m.kr., þar af voru fjárfestingar Hafnarsjóðs um 173 m.kr.
Heilt yfir voru útgjöld nánast á pari við fjárhagsáætlun, ef frá er talinn launaþátturinn, en töluverðar launahækkanir komu inn á árinu 2024 sem ekki var gert ráð fyrir að fullu í fjárhagsáætlun. Það er hins vegar eftirtektarvert að forstöðumenn stofnana Snæfellsbæjar eru að skila almennum rekstri sinna stofnana enn eitt árið undir áætlun. Þetta er mjög ánægjulegt og eiga forstöðumenn hrós skilið fyrir hversu vel þeir reka sínar stofnanir og hversu vel þeir eru að fylgjast með fjárhag sinna eininga.
Rekstur stofnana var því með miklum ágætum, þó launakostnaður hafi farið fram úr áætlunum.
Lífeyrisskuldbindingar fóru jafnframt fram úr áætlunum, en skuldbindingar lífeyrisþega hækka jafnhliða launahækkunum starfsmanna á opinberum launamarkaði.
Helstu lykiltölur ársreiknings eru taldar hér:
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 4.010 m.kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 3.623 m.kr. Rekstrartekjur A- hluta námu um 3.185,6 m.kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 2.872,7 m.kr.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var jákvæð um 436,9 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 167 m.kr.. Rekstrarafkoman varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 269,9 m.kr.. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 239 m.kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir afkomu upp á 105 m.kr.. Afkoma A-hluta varð því betri sem nemur 134 m.kr..
Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 2.107 m.kr. en starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 152 stöðugildum í árslok.
Veltufé frá rekstri var 414 m.kr. og veltufjárhlutfall er 0,74 hjá A-hluta. Veltufé frá rekstri í samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var 684 m.kr. í árslok 2024 og veltufjárhlutfall samstæðunnar er 1,35.
Handbært frá rekstri var 383 m.kr. hjá A-hluta og 646,7 m.kr.. hjá samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta. Þessi tala gefur vísbendingar um hæfni Snæfellsbæjar til að greiða skuldir og standa undir nauðsynlegum fjárfestingum á árinu.
Heildareignir bæjarsjóðs námu um 6.163 m.kr. og heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 7.914 m.kr. í árslok 2024.
Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.976 m.kr. og í samanteknum ársreikningi um 2.107 m.kr., og lækkuðu milli ára um 68 m.kr.
Snæfellsbær hefur verið að greiða niður lán og minnka skuldir undanfarin ár, og á árinu 2024 voru engin ný lán tekin, þrátt fyrir töluverðar fjárfestingar. Verðbólga fór lækkandi á árinu og lækkuðu því skuldir Snæfellsbæjar að nafnvirði á árinu 2024. Skuldir Snæfellsbæjar við lánastofnanir lækkuðu milli ára, eða um 68 m.kr. hjá samanteknum reikningi A- og B-hluta.
Skuldahlutfall Snæfellsbæjar er lágt, eða 62,04% hjá A-hluta og 52,54% hjá samanteknum reikningi A- og B-hluta. Ef notað er skuldaviðmið skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga, þá fer prósentan niður í 43,11% fyrir A-hluta og 33,10% fyrir samstæðuna. Snæfellsbær hefur því töluvert svigrúm til lántöku ef kemur til einhverra stærri tekjufalla í framtíðinni. Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta hlutfall ekki að vera hærra en 150%.
Eigið fé bæjarsjóðs nam um 4.186,7 m.kr. og eigið fé í samanteknum reikningsskilum nam um 5.807,4 m.kr. í árslok 2024. Eiginfjárhlutfall er 67,93% á á árinu 2024 hjá A-hluta en var 65,70% árið áður. Eiginfjárhlutfall A- og B-hluta er 73,38% í lok árs 2024 en var 70,79% árið áður. Almennt er talið að 50% eiginfjárhlutfall hjá sveitarfélagi sé ásættanlegt.
Fjárfestingar á árinu 2024
Eins og áður segir, þá fjárfesti Snæfellsbær á árinu 2024 fyrir um 598 m.kr., þar af voru fjárfestingar Hafnarsjóðs um 173 m.kr. Stærstu einstöku fjárfestingarnar á árinu 2024 voru viðhaldsframkvæmdir, líkt og á árinu 2023. Skipt var um þak á íþróttahúsinu í Ólafsvík og á Félagsheimilinu Klifi. Byrjað var á framkvæmdum við viðbyggingu leikskólahúsnæðisins í Ólafsvík og á nýju anddyri við Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar, en þeim framkvæmdum lauk í byrjun árs 2025. Jafnframt var farið í mikið af nauðsynlegum viðhaldsframkvæmdum við nánast allar stofnanir bæjarfélagsins, og munu þær framkvæmdir halda áfram á árinu 2025.
Eins og fram kemur hér að ofan, voru fjárfestingar og framkvæmdir ársins 2024 mjög miklar hjá sveitarfélaginu, en þrátt fyrir það hefur tekist að lækka skuldir og halda rekstri sveitarfélagsins á pari við fjárhagsáætlun, jafnframt því að þurfa ekki að taka nein ný lán á árinu. Afkoma ársins 2024 var mjög jákvæð og verður því fjárhagsstaða Snæfellsbæjar að teljast afar góð.