Áminning frá forvarnarteymi Snæfellsness og lögreglunni á Vesturlandi

Meðfylgjandi er áminning frá forvarnarteymi Snæfellsness og lögreglunni á Vesturlandi varðandi ábyrgð foreldra og hættur sem stafa að eftirlitslausum unglingum á bæjarhátíðum og öðrum hátíðum. Um helgina eru bæði Danskir dagar í Stykkishólmi og Iceland Eclipse á Hellissandi.

Stór helgi framundan bæði í Snæfellsbæ og í Stykkishólmi

Þegar kemur að félags- og skemmtanalífi ungmenna gegna foreldrar lykilhlutverki, bæði sem fyrirmyndir og eftirlitsaðilar. Eftirlitslaus partý barna undir 18 ára er ein af þessum stóru ógnunum sem mæta krökkunum okkar, partý sem fara úr böndunum. Bæjarhátíðir heima eða að heiman eru ekki fyrir eftirlitslaus ungmenni á eigin vegum. Um tíma voru blikur á lofti og bakslag varðandi utanumhald og eftirlit foreldra. En með samstilltu átaki er okkur vonandi að takast að snú þeirri þróun við. Vel gert foreldrar!

Ábyrgð foreldra er því mikil og munið að barnið ykkar fæddist með 18 ára ábyrgð. Vert er að minna á að það er lögbrot að versla áfengi handa þeim sem er undir 20 ára. Kæru foreldrar. Ekki vera lögbrjótar!

Það verður aldrei of oft kveðið að foreldrar eru mikivægastir þegar kemur að öllum þáttum velferðar barna. Foreldar þurfa að taka ábyrgð sína á foreldrahlutverkinu alvarlega og vera í góðu sambandi við börnin sín.

Leiðandi foreldrar krefjast þroskaðrar hegðunar af börnum sínum. Þeir veita börnum hlýju og umhyggju og setja skýr mörk, rökstudd og útskýrð svo unglingurinn skilji hvað er að gerast. Þá er gott að hafa í huga að barn sem elst upp við markaleysi á sjálft erfitt að setja sjálfu sér og öðrum mörk. Leiðandi foreldrar aðlaga sig að auknum þörfum unglinga fyrir frelsi og ábyrgð. Þeir hvetja þá til að skýra út sjónarmið sín og leggja áherslu á að ræða saman þar sem fram koma bæði sjónarmið barna og foreldra, til dæmis þegar reglur eru settar. Reglur eru settar til að verja börnin okkar.

Allir þurfa að upplifa það að þeir séu mikilvægir, að einhverjum þyki vænt um þá og það skipti máli hvernig þeim líður. Mikilvægt er að foreldrar leggi rækt við og séu í góðu samband við börn sín, því það samband virkar sem fyrirmynd fyrir seinni tíma sambönd. Öruggt umhverfi fyrir börn er grunnur til að öðlast trú á sjálfan sig og hæfileika sína.

Forvarnarteymi Snæfellsness, Lögreglan á Vesturlandi