Alzheimersamtökin með fræðslu í Snæfellsbæ

Alzheimersamtökin bjóða til fræðslu í Snæfellsbæ þriðjudaginn 26. ágúst kl. 17 í Klifi félagsheimili, þar sem starf samtakanna verður kynnt og fjallað um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur. Fræðslan er opin öllum áhugasömum og aðgangur er ókeypis.

Meiri þekking og minni fordómar

Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Umræða um heilabilun er einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.

Þau halda því reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið og eru núna á ferðinni um Snæfellsnesið og halda erindi í Snæfellsbæ, Grundarfirði og Stykkishólmi.

Heilabilun og samskipti

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi þeirra sjá um fræðsluna. Þær kynna starfsemi samtakanna og fjalla um heilabilun og leiðir til að bæta samskipti við einstaklinga sem glíma við slíkar raskanir.

Laufey Jónsdóttir, tengiráðgjafi Gott að eldast verkefnisins á Vesturlandi verður einnig með stutt erindi.

Öll velkomin – aðgangur ókeypis

Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Alzheimersamtökin hvetja alla áhugasama til að mæta, hvort sem um er að ræða einstaklinga með heilabilun, aðstandendur, fagfólk eða aðra áhugasama.

Nánari upplýsingar:

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna
thelma@alzheimer.is
sími 86 86 056