Alþjóðlegur dagur vistvanga UNESCO er haldinn í dag, 3. nóvember
03.11.2026 |
Fréttir
Í dag, 3. nóvember, er alþjóðlegur dagur vistvanga UNESCO (International Day for Biosphere Reserves).
Dagurinn er tileinkaður mikilvægi vistvanga og vakin er athygli á hlutverki þeirra í verndun líffræðilegrar fjölbreytni, sjálfbærri þróun og samspili manns og náttúru.
Vistvangar UNESCO byggja á þeirri hugmynd að náttúruvernd og sjálfbær nýting auðlinda geti farið saman. Starfsemi vistvanga stuðla að rannsóknum, fræðslu, samstarfi og nýsköpun þar sem samfélög og náttúra fá að dafna saman.
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) staðfesti laugardaginn 27. september 2025 umsókn Íslands um að gera Snæfellsnes að vistvangi. Er Snæfellsnes fyrsta svæðið á Íslandi sem hlýtur þessa alþjóðlegu viðurkenningu.
Hugtakið vistvangur er íslenskt nýyrði yfir hugtakið Biosphere Reserve, en þau svæði eru viðurkennd af MAB-áætlun UNESCO (Man and the Biosphere Programme). Vistvangur nýtir náttúru- og félagsvísindi sem grunn til að auka lífsgæði íbúa og stuðla að sjálfbærri þróun, með farsælu samspili umhverfis, mannlífs og menningar.
Til hamingju með daginn, Snæfellingar.