Alþjóðlegt samstarfsverkefni um frumkvöðlahugsun ungs fólks í dreifbýli

Dagana 31. maí til 4. júní fór fram vinnufundur og vettvangsheimsóknir í tengslum við alþjóðlega verkefnið BEAM – Building Entrepreneurial Attitude and Mindset, sem er samstarfsverkefni sveitarfélaga í Suður-Eistlandi og sveitarfélaga á Snæfellsnesi. Markmið verkefnisins er að efla frumkvöðlahugsun, samfélagsþátttöku og framtakssemi ungs fólks í dreifbýli ásamt því að þróa hagnýtt stuðningslíkan fyrir fagfólk sem starfar með ungu fólki.

Að verkefninu á Íslandi standa Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær og Stykkishólmsbær. Fyrir hönd Snæfellsbæjar hefur Halldóra Kristín Unnarsdóttir, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Afdreps, haft umsjón með skipulagi og framkvæmd verkefnisins. Með henni í verkefnahópnum eru Hinrik Konráðsson, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Eden í Grundarfirði, og Magnús Bæringsson, forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Xið í Stykkishólmi.

Alls komu níu þátttakendur frá Suður-Eistlandi til Íslands þar sem unnið var að þróun og mótun verkefnisins, miðlun reynslu og undirbúningi næstu skrefa. Heimsóknin markar mikilvægan áfanga í verkefninu og leggur grunn að áframhaldandi samstarfi sveitarfélaganna og fagfólks í æskulýðsstarfi.

Á meðan á heimsókninni stóð fengu gestirnir tækifæri til að kynnast fjölbreyttu samfélagi og starfsemi á Snæfellsnesi. Í Snæfellsbæ voru heimsóttar Smiðjan, Þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Vatnshellir og farið í ævintýraferð með Glacier Paradise frá Arnarstapa þar sem ekið var á buggy-bílum um stórbrotna náttúru svæðisins.

Í Grundarfirði heimsótti hópurinn Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Sögumiðstöðina, þar sem kynnt voru menningar- og menntaverkefni svæðisins. Í Stykkishólmi naut hópurinn leiðsagnar í eyjasiglingu með Sæferðum, þar sem náttúra og saga Breiðafjarðar voru í forgrunni.

Íslenski verkefnahópurinn lagði mikla áherslu á að kynna gestunum það fjölbreytta samfélag sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða, bæði hvað varðar menningu, náttúru, atvinnulíf og matarmenningu. Markmiðið var að gefa þátttakendum sem besta innsýn í styrkleika svæðisins og þau tækifæri sem felast í dreifbýli þegar kemur að nýsköpun, frumkvæði og samfélagsþróun.

Næsti áfangi verkefnisins verður um miðjan ágúst þegar íslenskur hópur heldur til Suður-Eistlands til áframhaldandi vinnu. Þar verður unnið áfram að þróun stuðningslíkansins, miðlun reynslu milli landanna og mótun nýrra leiða til að styðja við ungt fólk í dreifbýli.

Þátttakendur frá Eistlandi héldu heim þann 4. júní síðastliðinn, þakklátir fyrir móttökurnar, innblásnir af því sem þeir höfðu upplifað og spenntir fyrir áframhaldandi samstarfi í verkefninu. Verkefnið hefur þegar skapað sterk tengsl milli þátttakenda og sveitarfélaganna og lofar góðu fyrir áframhaldandi þróun og samstarf á komandi misserum.

Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ áætlunina. Skoðanir og niðurstöður sem fram koma í verkefninu eru á ábyrgð þátttakenda og endurspegla ekki endilega afstöðu Evrópusambandsins eða Erasmus+.