Alþjóðleg glerlistahátíð á Hellissandi næstu vikurnar - Glóandi Jökull

Það verður mikið um dýrðir á Hellissandi á morgun, miðvikudaginn 24. júní, þegar glerlistahátíðin Glóandi Jökull hefst með formlegum hætti.

Undirbúningur fyrir hátíðina hefur staðið undanfarna mánuði, en segja má að fyrstu drög að hátíðinni hafi orðið til í Berlín fyrir rúmum tveimur árum þegar skipuleggjendur hátíðarinnar tóku upp samtal um að halda metnaðarfulla, alþjóðlega glerlistahátíð við rætur Snæfellsjökuls á Íslandi.

Forsprakkar og skipuleggjendur hátíðarinnar eru þær Louise Lang frá Þýskalandi, Fiona Byrne frá Írlandi og Laura Sonne Lund frá Danmörku. Sýningarstjóri er listamaðurinn Bjarni Sigurbjörnsson á Himinbjörgum.

Hátíðin stendur í rúmar þrjár vikur og er einstakur lista- og menningarviðburður þar sem boðið er upp á fjölbreyttar sýningar og viðburði víða á Hellissandi. Listamenn koma frá Danmörku, Kanada, Tékklandi, Sviss, Þýskalandi, Írlandi og Bretlandi auk Íslands.

Hátíðin verður sett kl. 17:00 miðvikudaginn 24. júní í gamla frystihúsinu á Hellissandi - við Saltport.

Aðgangur að hátíðinni er öllum ókeypis og eru íbúar og aðrir gestir hvattir til að fjölmenna á viðburði og njóta þessarar eftirtektarverðu hátíðar hér í Snæfellsbæ. Jafnframt eru áhugasamir hvattir til að fylgja hátíðinni á samfélagsmiðlum til að missa ekki af áhugaverðum viðburðum næstu vikurnar.

Nánar: