Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026 - samráð við ferðaþjónustu og landeigendur á Vesturlandi

Vesturland er á almyrkvasvæðinu 12. ágúst 2026. Nú er kallað eftir samráði við ferðaþjónustu og landeigendur. 

Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 mun almyrkvi á sólu ganga yfir vesturhluta Íslands og sjást frá öllum sveitarfélögum á Vesturlandi. Gera má ráð fyrir mikilli aðsókn gesta á svæðið til að upplifa þennan sjaldséða atburð og því mikilvægt að allir sem málið varðar taki þátt í undirbúningi og samráði.

Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa heldur utan um samráðsvettvang Vesturlands vegna almyrkva, þar sem hagaðilar vinna saman að því að skapa yfirsýn yfir aðstöðu og mögulegar aðgerðir á svæðinu. Markmiðið er að stuðla að góðum undirbúningi fyrir atburðinn, auk þess að miðla upplýsingum og kynna þá aðstöðu og upplifunarmöguleika á Vesturlandi sem gestir sem koma til að sjá almyrkvann geta nýtt sér.

Áhugasamir og hlutaðeigandi hvattir til að taka þátt í undirbúningi vegna atburðarins og kynna sér samráðsvettvang og opinn kynningarfund.

1. Samráð við ferðaþjónustuaðila og landeigendur

Mikilvægt er að ná til ferðaþjónustuaðila og landeigenda sem kunna að hafa aðstöðu eða áhuga á að taka á móti gestum í tengslum við almyrkvann, til dæmis með:

  • bílastæðum
  • tjaldsvæðum
  • aðstöðu fyrir hópa
  • annarri þjónustu

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku samráði eru hvattir til að skrá sig hér: Hlekkur á skráningarform.

Skráningin er ekki bindandi, heldur aðeins til að skrá áhuga á að ræða möguleika á nýtingu á aðstöðu eða landi. Markaðsstofa Vesturlands mun í framhaldi hafa samband við þá aðila sem skrá sig til frekara samráðs.

2. Opinn upplýsingafundur á Teams – 12. mars

Til að kynna stöðu undirbúnings og ræða samstarf vegna almyrkvans verður haldinn opinn upplýsingafundur á Teams fimmtudaginn 12. mars kl. 14:00.

Fundurinn er sérstaklega ætlaður ferðaþjónustuaðilum og landeigendum, en öllum sem hafa áhuga á málinu er velkomið að taka þátt.

Þeir sem hafa áhuga á að mæta á upplýsingafund eru hvattir til að skrá sig hér: Hlekkur á skráningarform fyrir upplýsingafund 12. mars.

Teams-tengill á fundinn verður sendur til þeirra sem skrá sig.