Akstursstyrkur til íbúa í dreifbýli vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna

Íbúar í dreifbýli Snæfellsbæjar geta sótt árlega um sérstakan akstursstyrk til að koma til móts við kostnað vegna aksturs barna til Ólafsvíkur/Hellissands í íþrótta- og tómstundaiðkun.

Árlegur akstursstyrkur er nú 40.000 og skulu umsóknir berast bæjarritara í tölvupósti.

Í umsókn þarf að koma fram nafn foreldris/forráðamanns, nafn barns/barna, kennitala og reikningsnúmer þar sem leggja á styrkinn inn. Einnig þarf að fylgja vottorð/staðfesting frá þjálfara um að barnið sé skráð í íþróttir norðan heiðar.

Nánari upplýsingar gefur bæjarritari í síma 433-6900 eða netfangið lilja@snb.is.

Nánar: