Aflraunakeppnin Víkingurinn fer fram um helgina - tvær greinar í Snæfellsbæ
Aflraunakeppni milli sterkustu manna landsins, Víkingurinn 2026, fer fram dagana 24. - 26. júlí 2026 og fara tvær keppnisgreinar fram í Snæfellsbæ.
Keppnin hefur verið haldin árlega undanfarna áratugi og alla jafna fara einhverjar keppnisgreinar fram í Snæfellsbæ. Á laugardeginum mun heljarmennin sem taka þátt reyna á mátt sinn og megin í tveimur greinum við Ólafsvíkurkirkju og eru íbúar hvattir til að fjölmenna og styðja keppendur áfram.
Dagskrá Víkingsins í heild sinni er hægt að sjá hér að neðan.
Föstudagur 24. júlí
Ólafsfjörður kl. 14:00: Mylluganga við Tjarnarborg
Siglufjörður kl. 16:00: Drumbalyfta við Kaffi Rauðku
Laugardagur 25. júlí
Blönduós kl. 11:00: Steinatök og réttstöðulyfta við Kvennaskólann
Ólafsvík kl. 18:00: Bóndaganga og kastað yfir vegg við Ólafsvíkurkirkju
Sunnudagur 26. júlí
Stykkishólmur kl. 13:00: Víkingapressa og blönduð grein við Sjávarpakkhúsið