Umhverfis- og skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Norðurtangi 11 - Ósk um varanlega lóðaúthlutun og uppbyggingu þjónustuhúss
2610011
Gísli Ólafsson, fyrir hönd SH55 slf. / Lakitours kt. 510310-1010, óskar eftir varanlegri úthlutun lóðarinnar að Norðurtanga 11 en félagið hefur haft þar aðstöðu fyrir starfsemi sína undanfarin níu ár.
Fyrirhugað er að reisa allt að 150 m² þjónustuhús sem mun hýsa meðal annars skrifstofu, miðasölu, minjagripaverslun, kaffihús, salernisaðstöðu og geymslu. Jafnframt er gert ráð fyrir bílastæðum vegna starfseminnar.
Fái erindið jákvæðar undirtektir verða lagðar fram hugmyndateikningar og nánari útfærsla framkvæmdarinnar. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist árið 2028.
Fyrirhugað er að reisa allt að 150 m² þjónustuhús sem mun hýsa meðal annars skrifstofu, miðasölu, minjagripaverslun, kaffihús, salernisaðstöðu og geymslu. Jafnframt er gert ráð fyrir bílastæðum vegna starfseminnar.
Fái erindið jákvæðar undirtektir verða lagðar fram hugmyndateikningar og nánari útfærsla framkvæmdarinnar. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist árið 2028.
Þar sem ekki er um skráða lóð að ræða hafnar umhverfis- og skipulagsnefnd erindinu en tekur jákvætt í að skoða uppbyggingarmöguleika á hafnarsvæðinu í samráði við Hafnarnefnd. Skoða þarf örugga fjarlægð bygginga frá olíutönkum á Norðurtanga 13.
2.Gíslabær L136277 - Ósk um stofnun lóðar úr landi
2610013
Fyrir hönd landeiganda óska Landlínur ehf eftir stofnun nýrrar lóðar úr landi Gíslabæjar L136277. Stærð jarðarinnar er óskráð. Hin nýja lóð fær heitið Gíslabæjarland 2 og liggur afmörkun hennar hvergi að jarðamörkum Gíslabæjar L136277. Lóðin er stofnuð utan um útleiguhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti erindi Landlína ehf., fyrir hönd landeiganda Gíslabæjar L136277, um stofnun nýrrar lóðar úr landi jarðarinnar samkvæmt framlögðum uppdrætti.
3.Fróðá - Ósk um nýtt deiliskipulag
2610012
Lögð er inn skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags fyrir frístundabyggð á jörðinni Fróðá L132771 og klúbbhús með gistirými og möguleika á veitingasölu á jörðinni Fróðá golfvöllur L206762.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lýsingu og felur tæknideild að beina henni í kynningu skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4.DSK_Rif og Hellissandur - Deiliskipulag
2605007
Lögð er fram skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags í Rifi og á Hellissandi í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Skipulagssvæðin ná til þegar byggðra hluta þéttbýlisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lýsingu og felur tæknideild að beina henni í kynningu skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5.Hellissandur_Tillaga að reitum undir frístundabyggð
2601007
Lagðar eru fram tillögur að skipulagi fyrir þrjú frístundasvæði sunnan við Hellissand til frekar umræðu.
Lagt fram til kynningar.
6.Gíslabær_Umsókn um breytingu deiliskipulags
2610018
Svava Björk Jónsdóttir arkitekt sækir fyrir hönd eiganda Gíslabæjar á Hellnum um breytingu á deiliskipulagi ferðaþjónustu á Gíslabæ. Um er að ræða reit neðan Akravegar fyrir hótelíbúðir. Óskað er eftir því að heimilt verði að byggja hús á einni hæð í stað tveggja hæða og byggingarreitur færist fjær bakkanum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í óverulega breytingu á deiliskipulagi.
7.Gufuskálar - Umsókn um varmadælu
2610015
Snæfellsbær óskar eftir leyfi til að setja upp frístandandi varmadælu fyrir framan kyndikompu að sunnanverðu við gistihúsið á Gufuskálum. Varmadælan yrði staðsett 1,5 m frá vegg.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
8.Spjallbekkur á Hellissandi
2610016
Kvenfélag Hellissands sækir um leyfi til að setja niður spjallbekk til minningar um kvenfélagskonur sem hafa fallið frá. Hugmyndir hafa komið upp um að setja bekkinn á flötina á móti Röstinni eða á horninu við brúnna hjá grunnskólanum. Óskað er eftir afstöðu nefndar til staðsetningar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið og tekur jákvætt í að bekkurinn verði staðsettur við brúnna.
9.Ennisbraut 37 - Beiðni um lækkun gangstéttar vegna nýrrar innkeyrslu
2609008
Anton Gísli Ingólfsson sækir um leyfi til þess að fjarlægja 3 metra bút úr gangstéttinni og steypa nýja með lægri gangstéttarkanti við götu vegna bílastæðis.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að fara í framkvæmdina, á eigin kostnað, en bendir umsækjanda að vinna málið í samráði við tæknideild Snæfellsbæjar.
10.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026
2601006
Fundi slitið - kl. 12:00.