Umhverfis- og skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Skjaldartröð - Ósk um breytta skilgreiningu landnotkunar í aðalskipulagi
2512001
Christine Cheng Blin sendir inn frekari gögn vegna umsóknar sinnar því í desember 2025. Þess er farið á leit að nýtingarskilgreining þriggja svæða inna Skjaldartraðar verði breytt í íbúðabyggð annarsvegar aðalskipulag og frístundabyggð hinsvegar. Áður var eingöngu talað um breytingu í íbúðabyggð. Verkefnið leitast við að aðlaga hófstillta uppbyggingu að náttúru með ígrunduðu, dreifðu og landslagsmiðuðu byggðamynstri.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en bendir á að vinna þarf merkjalýsingu fyrir jörðina.
2.Bjarnarfoss - Merkjalýsing_Eitt leiðrétt hnit
2610001
Tillaga að landamerkjum fyrir Bjarnarfoss var samþykkt árið 2025. Gerð er sú breyting að bætt er inn texta um að hnitapunktur nr. 2 er leiðréttur og því verði hnitapunktur nr. 6 í landamerkjabréfi Bjarnarfosskots leiðréttur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
3.Dalbrekka_Nýtt deiliskipulag
2401013
Skipulagsfulltrúi fer yfir stöðuna.
4.Ólafsbraut 19 - Umsókn um leyfi fyrir varmadælu og klæðningu
2609001
Lilja Hrund Jóhannsdóttir sækir fyrir hönd Húsfélagsins Ólafsbrautar 19 um leyfi fyrir því að setja upp standandi varmadælu við austurhlið hússins ásamt því að klæða alla suðurhlið hússins með liggjandi báruáli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.
5.Háarif 6 - Umsókn um varmadælu við Dæluhúsið
2610002
Hildigunnur Haraldsdóttir sækir um leyfi fyrir því að setja upp varmadælu við austurhlið dæluhússins að Háarifi 6. Dælan er loft í loft og verður skermuð af með timburvegg sem jafnar vind og mildar ásýnd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
6.Naustabúð 13_Umsókn um leyfi fyrir sólskála
2610003
Gunnar Ólafur Sigmarsson sækir um leyfi fyrir ca 20 fm sólskála við hús sitt að Naustabúð 13.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar telur fyrirhugaða framkvæmd samræmast gildandi aðalskipulagi, landnotkun, byggðamynstri og þéttleika byggðar á svæðinu. Fordæmi eru fyrir sólskálum við nærliggjandi hús.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að heimiluð verði málsmeðferð umsóknarinnar án deiliskipulagsgerðar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að umsóknin verði grenndarkynnt.
Að fenginni samþykkt bæjarstjórnar er tæknideild falið að grenndarkynna umsóknina fyrir eigendum Naustabúðar 15. Veittur verði að lágmarki fjögurra vikna frestur til athugasemda.
Að lokinni grenndarkynningu verði málið lagt fyrir nefndina að nýju, ásamt þeim athugasemdum sem kunna að berast, til endanlegrar afgreiðslu. Berist engar athugasemdir er byggingarfulltrúa falið að ganga frá byggingarleyfi. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilum fullnægjandi gagna til byggingarfulltrúa og því að lögbundin skilyrði séu uppfyllt.

7.Munaðarhóll 12 - Umsókn um leyfi fyrir 12,6 fm viðbyggingu við bílskúr
2610004
Guðmundur Eyþór Már Ívarsson sækir um byggingarleyfi fyrir 12,6 fm viðbyggingu við bílskúr að Munaðarhóli 12.
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar telur fyrirhugaða framkvæmd samræmast gildandi aðalskipulagi, landnotkun, byggðamynstri og þéttleika byggðar á svæðinu.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að heimiluð verði málsmeðferð umsóknarinnar án deiliskipulagsgerðar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að umsóknin verði grenndarkynnt.
Að fenginni samþykkt bæjarstjórnar er tæknideild falið að grenndarkynna umsóknina fyrir eigendum Munaðarhóls 14. Veittur verði að lágmarki fjögurra vikna frestur til athugasemda.
Að lokinni grenndarkynningu verði málið lagt fyrir nefndina að nýju, ásamt þeim athugasemdum sem kunna að berast, til endanlegrar afgreiðslu. Berist engar athugasemdir er byggingarfulltrúa falið að ganga frá byggingarleyfi. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilum fullnægjandi gagna til byggingarfulltrúa og því að lögbundin skilyrði séu uppfyllt.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að heimiluð verði málsmeðferð umsóknarinnar án deiliskipulagsgerðar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að umsóknin verði grenndarkynnt.
Að fenginni samþykkt bæjarstjórnar er tæknideild falið að grenndarkynna umsóknina fyrir eigendum Munaðarhóls 14. Veittur verði að lágmarki fjögurra vikna frestur til athugasemda.
Að lokinni grenndarkynningu verði málið lagt fyrir nefndina að nýju, ásamt þeim athugasemdum sem kunna að berast, til endanlegrar afgreiðslu. Berist engar athugasemdir er byggingarfulltrúa falið að ganga frá byggingarleyfi. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilum fullnægjandi gagna til byggingarfulltrúa og því að lögbundin skilyrði séu uppfyllt.
8.Ytri Bugur L235301 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir tvö 16,9 fm gistihús til útleigu
2610007
Guðmundu Guðmundsson sækir um byggingarleyfi til að setja upp tvö 16,9 fm gistihús til útleigu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar erindinu. Nefndin felur byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda og hönnuð.
9.Arnarbær, Arnarstapa - Umsókn um stækkun á aðstöðuhúsi
2610008
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður sækir fyrir hönd Hótel Arnarstapa um byggingarleyfi fyrir stækkun á aðstöðuhúsi og bakaríi sem staðsett er fyrir aftan veitingahúsið Arnarbæ. Húsið verður 92,6 fm. Í dag eru tvö hús en til stendur að fjarlægja aftara húsið og byggja við fremra húsið til að það verði eitt hús með það fyrir augum að bæta aðstöðu og aðgengi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.
10.Engihlíð 1 - Stigatafla á fótboltavellinum í Ólafsvík
2610006
Í byrjun júlí 2026 kom inn beiðni frá Víking um að reisa stigatöflu á knattspyrnuvellinum í Ólafsvík. Þar sem að ekki var fundur á dagskrá umhverfis- og skipulagsnefndar var erindið samþykkt af nefndarmönnum í gegnum tölvupóst. Erindið er því lagt fram hér til formlegrar afgreiðslu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
11.Stæði fyrir neðan Fell, Arnarstapa - Umsókn um stöðuleyfi fyrir tveimur 40 ft gámum
2609005
Kolfinna Haraldsdóttir sækir fyrir hönd Vetrarþjónustunnar um að setja niður tvo 40 ft gáma með skrúfum við núverandi aðstöðuhús þeirra á planinu fyrir neðan Fell á Arnarstapa. Gámarnir verða klæddir svipaðri klæðningu og aðstöðuhúsið. Gámarnir eru hugsaðir til að hýsa bílana og því sem fylgir rekstrinum yfir vetrartímann.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en felur umsækjanda að ræða við byggingarfulltrúa um nánari útfærslu.
12.Naustabúð 17-Leikskólinn Kríuból óskar eftir að fá að koma niður Bamba gróðurhúsi
2609009
Leikskólastjóri Leikskóla Snæfellsbæjar óskar eftir leyfi til að koma fyrir einu 6,6 m2 Bamba gróðurhúsi á lóð leikskólans Kríubóls.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
13.Norðurtangi 11 - Fyrirspurn um lóð fyrir 450 fm iðnaðarhúsnæði
2610005
Daníel Þorsteinsson og Birgir Tryggvason sækja um úthlutun lóðar milli Norðurtanga 9 og 13, Ólafsvík. Þar sem sú lóð er ekki skráð verður farið með umsóknina eins og um fyrirspurn sé að ræða. Óskað er eftir afstöðu Snæfellsbæjar til þess að á lóðinni yrði byggt 450 fm iðnaðarhúsnæði sem skipt verði í þrjár jafnstórar einingar, um 150 fm hver. Gert er ráð fyrir límtrésburðarvirki og yleiningum í veggjum og þaki.
Þar sem ekki er um skráða lóð að ræða hafnar umhverfis- og skipulagsnefnd erindinu en tekur jákvætt í að skoða uppbyggingarmöguleika á hafnarsvæðinu í samráði við Hafnarnefnd. Skoða þarf örugga fjarlægð bygginga frá olíutönkum á Norðurtanga 13.
14.Norðurtangi 1 - Ósk um nýtt fasteignanúmer á matshluta 01
2609010
Fríða Sveinsdóttir sækir fyrir hönd HG Geisla ehf um nýtt fasteignanúmer fyrir matshluta 01 á Norðurtanga 1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
15.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026
2601006
- Brautarholt 10 - Umsókn um varmadælu
Tekið inn með afbrigðum.
Jóhannes Ólafsson sækir um leyfi fyrir varmadælu við norðanvert hús sitt að Brautarholti 10.
Kristjana víkur af fundi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
Kristjana kemur aftur inn á fund.
- Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
Samþykkt var að taka upp afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem byggingarfulltrúa er heimilt að afgreiða tilkynningarskyld mál án aðkomu nefndarinnar. Sú fundargerð verði kynnt umhverfis- og skipulagsnefnd.

Fundi slitið - kl. 12:40.