Umhverfis- og skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Búðir L136196 - Umsókn frá Landi og Skógum um endurheimt votlendis
2608001
Land og skógar sækir um fyrir hönd Fjársýslu Ríkisins um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis á jörðinni ríkisjörðinni Búðir landnr. 136196. Fyrirhugað endurheimtarsvæði er 130ha að stærð og áætlað að fylla í allt að 7915m af skurðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en það er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag þar sem gert er ráð fyrir tveimur svæðum undir mannvirki innan umrædds svæðis. Jafnframt er bent á að ekki liggur fyrir merkjalýsing fyrir landið, æskilegt er að hún verði unnin samhliða. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir landeiganda að eiga samtal við skipulagsfulltrúa Snæfellsbæjar.
2.Fyrirspurn frá landeigendum Fróðár vegna uppbyggingar á jörðinni
2607008
Eigendur Fróðár hafa í hyggju að byggja nýtt klúbbhús og tækjageymslu fyrir golfvöllinn og að koma fyrir nokkrum frístundahúsum meðfram Fróðánni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í fyrirspurnina enda er hún að hluta til í samræmi við gildandi aðalskipulag. Nefndin bendir á að æskilegt væri að huga að gerð deiliskipulags og merkjalýsingar fyrir landið.
3.Dalbrekka, nýtt deiliskipulag
2401013
Skipulagsfulltrúi fer yfir stöðu verkefnisins útfrá umræðu síðasta fundar
4.Geirakot - merkjalýsing
2607007
Eigendur Geirakots ósk eftir uppskiptingu jarðarinnar samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
5.Snæfellsás 3 - Umsókn um smáhýsi
2607011
Valdimar Hall Sölvason sækir um leyfi fyrir smáhýsi á lóðinni Snæfellsás 3
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið þar sem smáhýsið mun standa á lóð 3a. Nefndin óskar eftir skriflegu samþykki allra aðliggjandi nágranna.
6.Stækkun lóðar Jaðars
2608002
Lögð eru fram drög að stækkun lóðanna Hjarðartún 5 og 9.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir drögin og felur tæknideild að ganga frá lóðarblaði fyrir Hjarðartún 9.
7.Sandholt 34_Umsókn um leyfi fyrir heitum potti
2607003
Lilja Hrund Jóhannsdóttir sækir um leyfi fyrir uppsetningu á heitum potti á sunnanverðri lóð sinni að Sandholti 34.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
8.Sandholt 34_Ósk um leyfi fyrir steyptum vegg á lóðarmörkum
2607002
Lilja Hrund Jóhannsdóttir sækir um heimild til að reisa 180 cm steyptan vegg á lóðarmörkum í suður og að hluta til að austanverðu. Saga þarf af malbiki í á göngustíg austan við húsið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
9.Sandholt 9 - Umsókn um varmadælur
2607009
Óðinn Kristmundsson sækir um leyfi fyrir tveimur varmadælum. Um er að ræða 10 kw/h frístandandi loft í vatn á vesturhlið húss og 6 kw/h loft í loft á vesturhlið bílskúrs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
10.Vallholt 20 - Umsókn um leyfi fyrir klæðningu
2607010
Jón Haukur Hilmarsson sækir um byggingarleyfi fyrir því að klæða hús sitt að Vallholti 20 með flísum. Húsið er steinsteypt.
Umhverfis-og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti útgáfu byggingarheimildar að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.4 og gr. 2.3.7 byggingarreglugerðar nr. 112/2012
11.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026
2601006
- Náttúruhamfaratrygging Íslands - Áminning um ákvæði 16. gr. laga nr. 55/1992
Kynnt
- Nefndin minnir á að smáhýsi séu tilkynningarskyld og ávallt skuli tilkynna þau áður en bygging hefst.
- Tekið inn með afbrigðum: Furubrekka - Fyrirspurn vegna vélaskemmu
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og kallar eftir gögnum sem uppfylla byggingarreglugerð.
- Tekið inn með afbrigðum: Bárðarás 7 - Umsókn um leyfi fyrir þegar byggðum kofa
Umhverfis-og skipulagsnefnd samþykkir ekki erindið þar sem smáhýsið uppfyllir ekki kröfur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um reglur um brunavarnir. Umsækjandi er hvattur til að hafa samband við byggingarfulltrúa til að ræða úrlausnir.

Fundi slitið - kl. 12:30.