Umhverfis- og skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Músaslóð 13 - Umsókn um lóð
2606004
Sigurbjörn Grétar Ragnarsson sækir um lóðina Músaslóð 13 á Arnarstapa fyrir 100 m2 sumarhús á einni hæð.
Umhverfi-og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar
2.DSK - Bárðarslóð 1 - Breyting á deiliskipulagi
2511010
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 8. janúar 2026 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi á Arnarstapa í samræmi við 1. mgr. 43. gr skipulagslaga.
Deiliskipulagstillagan nær til Hótel Arnarstapa við Bárðarslóð 1 sem er innan VÞ-1 á Arnarstapa, Snæfellsbæ. Gert var ráð fyrir í deiliskipulagi frá 2015 að leyfilegt byggingarmagn fyrir þjónusthús væri 290 fm. Í breytingartillögu er gert ráð fyrir stækkun á byggingarreit til suðurs og aukningu á heimiliðu byggingarmagni þjónustuhúss um 160 fermetra eða þannig að leyfilegt byggingarmagn þjónustuhúss verði í heildina allt að 450 fermetrar.
Lagðar eru fram umsagnir og athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma. Alls bárust 10 umsagnir.

Umhverfis-og skipulagsnefnd samþykkir erindið og felur tæknideild að ganga frá erindinu í samræmi við skipulagslög.
3.Munaðarhóll 9 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir klæðningu
2606001
Axel Kristinn Davíðsson sækir um leyfi til að skipta um utanhússklæðningu á húsinu að Munaðarhól 9 Hellissandi.
Umhverfis-og skipulagsnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti og felur byggingarfulltrúa að klára erindið með húseiganda.
4.DSK_Dalbrekka_Nýtt deiliskipulag
2401013
Skipulagsfulltrúi fer yfir stöðuna á verkefninu.
Umhverfis-og skipulagsnefnd þakkar fyrir yfirferðina.
5.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026
2601006
- Sótt er um leyfi til að rífa hluta gamla Hraðfrystihúss Hellissands sem brann þann 17. júní sl.
Umhverfis-og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
-Lúðvík Smárason sækir um leyfi f.h eiganda Háarifs 21 um byggingu 4 m2 sánuklefa sem tengdur verður palli.

-Matthías Páll Gunnarsson sækir um leyfi f.h Snæfellsbæjar um endurnýjun saunuklefa við sundlaugina í Ólafsvík.

Matthías Páll Gunnarsson víkur af fundi.
6.Umsóknir á tæknisviði
2606006
Matthías Páll Gunnarsson sækir um leyfi fyrir 15 m2 geymsluskúr á baklóð
Umhverfis-og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
Matthías kemur á fund.
Fundi slitið - kl. 11:50.