Umhverfis- og skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Fellaslóð 3_Breyting á deiliskipulagi
2605002
Sigríður Arngrímsdóttir hönnuður sækir fyrir hönd Karen Lien Thi Nguyen um leyfi fyrir breytingu á deiliskipulag fyrir Fellaslóð 3. Fyrirhugað er að stækka byggingarreit um 3 metra til suðurs þannig að byggingarreiturinn verði alls 11 metrar á lengd. Breidd helst óbreytt eða um 15,5 metrar. Heildar byggingarmagn fari ekki yfir 135 fm. Nýbygging skal vera í svipuðu útliti og núverandi hús með mænishæð allt að 3,5 metrum. Notkun hússins er óbreytt en húsnæðið er ætlað fyrir ferðaþjónustu með móttöku/þjónusturými og skrifstofum. Starfsemin gerir ráð fyrir 4-5 starfsmönnum og allt að 20 viðskiptavinum í biðsal þegar mest verður.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið og að deiliskipulagsbreyting verði auglýst í samræmi við 1. mgr 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur áherslu á að aðkoma að húsinu verði í samræmi við deiliskipulag.
2.Rif og Hellissandur - Deiliskipulag
2605007
Kynnt eru drög að skilmálum vegna deiliskipulagsvinnu fyrir Rif og hluta af Hellissandi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram og kynna hlutaðeigandi aðilum vinnu deiliskipulags.
3.Skipholt 14 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir klæðningu, stækkun svala og breytingu glugga
2605005
Bjarki Rúnar Steinsson sækir um byggingarleyfir fyrir því að klæða hús sitt að Skipholti 14 með standandi álklæðningu, síkka glugga á neðri hæð til norður ásamt því að færa glugga í stofu í suðurátt í upprunalegt horf með því að síkka þá. Einnig óskar hann eftir því að stækka svalir í vestur að lóðarmörkum og nýta þær sömuleiðis sem bílskýli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar. Nefndin felur tæknideild að grenndarkynna erindið fyrir eigendum að Skipholti 12. Nefndir bendir á að betur færi á að endurskoða efnisval grindverks sem verði í takt við fyrirhugaðar framkvæmdir.
4.Hellisbraut 16_Umsókn um byggingarleyfi fyrir 40 fm viðbyggingu
2602001
Á 199. fundi umhverfis- og skipulagsnefndar var erindi Sigfúsar Almarssonar frestað þar til gengið hefði verið frá lóðarsamningi, afstöðumynd og nýjum aðaluppdrætti sem næði einnig yfir eldri hluta hússins. Jafnframt var bent á að viðbygging samræmist eldra húsi betur í útliti.
Lóðarleigusamningur hefur verið undirritaður og afstöðumynd send inn ásamt nýjum aðaluppdrætti.
Lóðarleigusamningur hefur verið undirritaður og afstöðumynd send inn ásamt nýjum aðaluppdrætti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.
5.Grundarbraut 10 - Umsókn um ýmsar endurbætur að utan
2605003
Þorkell Árnason sækir um byggingarleyfi fyrir ýmsum endurbótum á húsi sínu að Grundarbraut 10. Gluggar verða endurnýjaðir og þeim breytt sem næst því sem talið að þeir hafi verið í upphafi. Gerður verður pallur við vestlæga hlið hússins og gerður útgangur úr stofu, þar sem áður var stór gluggi. Húsið verður klætt að utan með alosink báru, samskonar og er á húsinu í dag. Frágangur vindskeiða verður sem líkastur því sem er í dag. Ný hurð verður sett í kjallara en í kjallara er eingöngu tæknirými.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.
6.Ytri-Garðar_Fyrirspurn vegna afmörkunar íbúðarhúsalóða úr landi Ytri-Garða
2605009
Lögð er fram fyrirspurn frá landeigendum Ytri-Garða sem hyggja að gerð merkjalýsinga sem er undanfari uppbyggingar innan jarðarinnar. Í erindinu var óskað eftir leiðbeiningum frá tæknideild.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og hvetur fólk til þess að fylgja þessu áfram.
7.Naustabúð 11 - Óskað eftir leyfi fyrir saunahúsi á pallinum
2604010
Jón Bjarki Jónatansson sækir um leyfi fyrir saunahúsi á pallinum við hús sitt að Naustabúð 11.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindi en felur byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda varðandi staðsetningu.
8.Ljósmyndasýning við göngustíg á Sáinu
2605008
Heimir Berg Vilhjálmsson markaðs- og upplýsingafulltrúi sækir fyrir hönd menningarnefndar Snæfellsbæjar um leyfi fyrir uppsetningu á útiljósmyndasýningu við Sáið/hafnarsvæðið í Ólafsvík.
Fyrirhugað er að setja upp 10 - 12 mynda sýninguna í júní næstkomandi og láta hana standa í sex mánuði.
Ljósmyndir verða prentaðar á 70x100 cm álplötu sem verða festar með staurum á steyptar undirstöður frá Steypustöðinni í Rifi. Undirstöðurnar eru 120x60 cm að stærð og munu standa á grasinu. Engin jarðvinna felst í uppsetningu sýningarinnar.
Tilgangur sýningarinnar er að vekja athygli gesta á aðalburðarstoð atvinnulífs í sveitarfélaginu og skapa vettvang til að njóta ljósmynda og listasýningar undir berum himni í grennd við höfnina í Ólafsvík.

9.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026
2601006
- Fyrirkomulag leyfa fyrir matarvagna vegna sólmyrkva þann 12. ágúst næstkomandi.
Nefndin leggur til að matarvagnar þennan dag verði tilkynningarskyldir og að innheimt verði sanngjarnt gjald í samræmi við umfang umsýslu.
- Óleyfisframkvæmdir á Selhóli, Böðvarshölti og Ólafsbraut 19 ræddar.

Fundi slitið - kl. 12:00.