Umhverfis- og skipulagsnefnd

201. fundur 30. apríl 2026 kl. 10:00 - 11:45 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar
Nefndarmenn
  • Halldór Kristinsson Nefndarmaður
  • Illugi Jens Jónasson Formaður
  • Magnús Eiríksson Nefndarmaður
  • Kristjana Hermannsdóttir Varaformaður
  • Hallveig Hörn Þorbjargardóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • Matthías Páll Gunnarsson
  • Valgerður Hlín Kristmannsdóttir Ritari
  • Ragnar Már Ragnarsson
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir
Fundargerð ritaði: Valgerður Hlín Kristmannsdóttir Aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Stóri-Kambur - Umsókn um byggingarleyfi fyrir þremur 111,8 fm frístundahúsum

2604004

Hjörtur Sigurðsson sækir um byggingarleyfi fyrir þremur 111,8 fm frístundahúsum á Stóra-Kambi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar. Slökkviliðsstjóri bendir á að uppfylla þurfi tvær flóttaleiðir og að gera þurfi grein fyrir slökkvivatni.

2.Hábrekka 10 - Umsókn um gluggaskipti

2604006

Þórður Björnsson sækir um leyfi til að skipta um glugga á húsi sínu að Hábrekku 10. Breyting verður á útliti glugganna.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.

3.Norðurtangi 3 - Umsókn um nýtt bílastæði og nýja hurð og klæðningu í portinu

2604007

Vigfús Þráinn Bjarnason sækir um leyfi fyrir nýrri aðkomu og nýju bílastæði fyrir framan sinn hluta á Norðurtanga 3. Einnig sækir hann um að fá að stækka innkeyrsludyr og klæða vegg í porti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stækkun á bílskúrshurð og klæðningu í porti með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar. Nefndin hafnar framlagðri tillögu að nýju bílastæði og felur tæknideild að finna viðeigandi lausn með eiganda.

4.Amtmannshúsið, Arnarstapa - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 73,1 fm baðhúsi.

2603010

Kristján Eggertsson sækir um fh. eigenda byggingarleyfi á baðhúsi við Amtmannshúsið á Arnarstapa. Heildarstærð hússins verður 73,1 m2 og byggt úr timbri. Húsið verður byggt samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir lóðina sem nýverið tók gildi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.

5.Smiðjugata 6 - Umsókn um 270 fm viðbyggingu að grunnfleti

2604008

Davíð Magnússon sækir fyrir hönd Smiðjunnar Fönix um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu sem er 270,7 fm að grunnfleti með 44,4 fm millilofti. Viðbyggingin er stálgrindarhús klætt með yleiningum með steyptri plötu. Núverandi bygging er steinsteypt.
Magnús víkur af fundi.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.

Magnús kemur aftur inn á fund.

6.Golfvöllurinn á Rifi - Umsókn um byggingarleyfi fyrir golfskála

2604009

Hjörtur Ragnarsson sækir fyrir hönd Golfklúbbsins Jökuls um byggingarleyfi fyrir um 100 fm golfskála við golfvöllinn á Rifi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar. Nefndin felur tæknideild að útbúa lóðarblað fyrir golfvöllinn.
Fylgiskjöl:

7.Stórhóll Rifi - Umsókn um lóð

2604005

Birgitta Rún Baldursdóttir sendir inn fyrirspurn til að kanna möguleikann á að sækja um lóð við Stórhól, Rifi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið en bendir á að deiliskipulag fyrir Stórhól, Rifi er ekki lengur í gildi. Ef gera á nýtt deiliskipulag þarf að gera breytingu á aðalskipulagi Snæfellsbæjar en það ferli samanlagt getur tekur upp undir 2 ár. Nefndin er jákvæð fyrir því að skoða skipulagningu nýrra lóða á Rifi.

8.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026

2601006

- Umræða um ósamþykkt gistirými og tjaldstæði við Hafnargötu 16



- Umræða um brunamál við Norðurtanga 1 og Hellisbraut 20

Fundi slitið - kl. 11:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?