Umhverfis- og skipulagsnefnd

200. fundur 27. mars 2026 kl. 10:00 - 12:00 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar
Nefndarmenn
  • Halldór Kristinsson Nefndarmaður
  • Illugi Jens Jónasson Formaður
  • Magnús Eiríksson Nefndarmaður
  • Eiríkur Böðvar Rúnarsson varaformaður
  • Oddur Orri Brynjarsson varamaður
Starfsmenn
  • Matthías Páll Gunnarsson
  • Valgerður Hlín Kristmannsdóttir Ritari
  • Ragnar Már Ragnarsson
Fundargerð ritaði: Valgerður Hlín Kristmannsdóttir Aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Klettakot_Stofnun tveggja lóða úr Klettakoti L132779

2603001

Adam Hoffritz merkjalýsandi sendir inn erindi fyrir hönd eiganda Klettakots. Sótt er um stofnun tveggja lóða úr Klettakoti L132779. Tilgangur skipta er að eigendur eru að gera upp eignarhluta sína og skipta í séreignir. Ekkert skipulag er í gildi á svæðinu og verða engin mannvirki á nýjum lóðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið en bendir eigendum á að leita þurfi umsagnar Vegagerðarinnar ef leggja á vegslóðann.

2.Hjarðartún 10 - Umsókn um klæðningu tveggja hliða með báru

2603002

Jóhanna Jóhannesdóttir sækir fyrir hönd eiganda Hjarðartúns 10 um byggingarleyfi fyrir klæðningu hússins á tveimur hliðum með báruáli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um samþykki allra húseiganda og uppfylltum skilyrðum byggingarreglugarðar og uppfærðum aðaluppdráttum. Nefndin bendir umsækjanda á að skoða kostnað við að einangra og múra húsið.

3.Grundarbraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 16,4 fm viðbyggingu

2603003

Hildur Bjarnadóttir hönnuður sækir fyrir hönd Matarlistans ehf. um byggingarleyfi fyrir 16,4 fm viðbyggingu á vesturhlið hússins. Viðbyggingin verður úr timbri í stíl við núverandi hús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.

4.Hraunás 11 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 25,85 fm viðbyggingu

2603004

Kristgeir Kristgeirsson sækir um byggingarleyfi fyrir 25,85 fm viðbyggingu við hús sitt að Hraunási 11. Viðbyggingin er úr timbri og klæðning verður sambærileg þeirri sem er á húsinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynning fyrir eigendum Hraunáss 13 og uppfylltum skilyrðum byggingarreglugerðar.

5.Kaldilækur - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 77,7 fm viðbyggingu ásamt tengibyggingu

2603008

Lúðvík Ver Smárason sækir fyrir hönd Sjómannadagsráðs Ólafsvíkur um byggingarleyfi fyrir 8 fm tengibyggingu og 69,7 fm viðbyggingu við Kaldalæk sem stendur í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Þar sem viðbyggingin verður við hús frá 1905 þarf samþykki Minjastofnunar. Búið er að hafa samband við Minjastofnun og er beðið eftir svari.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar og samþykki Minjastofnunar.

6.Skólabraut 7_Ósk um afstöðu nefndar til teikninga íbúðarhúss

2602007

Sendar eru inn uppfærðar teikningar eftir athugasemd umhverfis- og skipulagsnefndar á 199. fundi nefndarinnar þann 26. febrúar 2026.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.

7.Fyrirspurn vegna átaksverkefnis um tvítengingu eintengdra þéttbýla með ljósleiðara

2603009

Innviðaráðuneytið er að fara í átaksverkefni um tvítengingu eintengdra þéttbýla með ljósleiðara. Miðað er við að lagður verði ljósleiðari frá Malarrifi út fyrir enda Snæfellsness sem tengist ljósleiðara til beggja enda í eigu Mílu, annars vegar við Gufuskála og hins vegar við Purkhóla nærri Malarrifi. Miðað er við að verkið verði unnið í samvinnu við Mílu á árinu 2026. Unnið er að lokahönnun en áformuð leið er sýnd í fylgiskjali.



Magnús Hauksson, framkvæmdastjóri Öryggisfjarskipta ehf. óskar eftir afstöðu sveitarfélagsins til verksins sem og ábendingum um framkvæmdina ef einhver eru.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.

8.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026

2601006

Stöðuleyfi vegna hjólhýsa strandveiðimanna rætt

- Nefndin bendir á rekstraraðila tjaldsvæðanna í Snæfellsbæ.



Óleyfisframkvæmdir í sveitarfélaginu ræddar



Sorpmál í sveitarfélaginu rædd

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?