Umhverfis- og skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Krossavík og Krossavík 1- Ósk um frest til að skila inn byggingarnefndarteikningum
2507002
Kári Viðarsson óskar eftir því fyrir hönd Kópatjarnar ehf. að fá frest til að skila inn byggingarnefndarteikningum vegna umsóknar um lóð að Krossavík og Krossavík 1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita frest til 5 mánaða.
2.Dagverðará_Vegna umsóknar um uppskiptingu jarðarinnar Dagverðarár.
2404014
Jörðin Dagverðará hefur ekki verið í ábúð síðustu áratugina. Láglendið að Dagverðará er skilgreint sem landbúnaðarsvæði en hálendi sem óbyggt svæði.
Til þess að skipta megi upp landinu þarf að fara fram merkjalýsing. Undirritun allra eigenda og aðlægra jarða skal leggja fram í merkjalýsingu, í samræmi við lög og reglugerðir þar um.
Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði og ekkert deiliskipulag er í gildi á jörðinni.
Hyggist landeigendur fara í framkvæmdir á jörðinni eða vegna skipulagsbreytinga skal þess gætt að leita umsagnar/samráðs við Náttúruverndarstofnun, því landið liggur að Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og er á svæði sem er á náttúruminjaskrá.
Til þess að skipta megi upp landinu þarf að fara fram merkjalýsing. Undirritun allra eigenda og aðlægra jarða skal leggja fram í merkjalýsingu, í samræmi við lög og reglugerðir þar um.
Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði og ekkert deiliskipulag er í gildi á jörðinni.
Hyggist landeigendur fara í framkvæmdir á jörðinni eða vegna skipulagsbreytinga skal þess gætt að leita umsagnar/samráðs við Náttúruverndarstofnun, því landið liggur að Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og er á svæði sem er á náttúruminjaskrá.
Umhverfis- skipulagsnefnd samþykkir að eigendur jarðarinnar, Dagverðará, láti vinna fyrir sig merkjalýsingu og uppskiptingu á landinu. Nefndin leggur áherslu á að hyggist landeigendur fara í framkvæmdir á jörðinni skuli leita umsagnar viðeigandi stofnanna og gæta þess að uppbygging sé í samræmi við ákvæði gildandi aðalskipulags.
3.Skólabraut 7_Ósk um afstöðu nefndar til teikninga íbúðarhúss
2602007
Elín Óladóttir, lóðarhafi Skólabrautar 7, vill kanna afstöðu nefndarinnar til fyrirliggjandi teikninga af húsi sem hún hyggst reisa á lóðinni. Sjá meðfylgjandi fylgigögn og frekari upplýsingar á https://landshus.is/klettar/
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að innsendar tillögur að húsi falli ekki að núverandi götumynd og ekki í samræmi við lóðarumsókn lóðarhafa. Nefndin leggur áherslu á að húsið verði í samræmi við önnur hús, þ.e. í "gömlum stíl". Nefndin bendir lóðarhafa á að hafa samráð við tæknideild og veitir frest til að skila inn aðaluppdrætti til 5 mánaða.
4.Hellisbraut 16_Umsókn um byggingarleyfi fyrir 40 fm viðbyggingu
2602001
Sigfús Almarsson sækir um byggingarleyfi fyrir 40 fm viðbyggingu við hús sitt að Hellisbraut 16.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar erindinu og óskar eftir gengið verði frá lóðarsamningi og afstöðumynd uppfærð í samræmi við ný lóðarmörk. Jafnframt óskar nefndin eftir að aðaluppdráttur nái einnig yfir eldra hús og að viðbygging samræmist eldra húsi betur í útliti.
5.Saxhóll_Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir frágangi á aðkomupalli og bílastæði
2602008
Katrín Karlsdóttir sækir fyrir hönd Náttúruverndarstofunar um framkvæmdaleyfi fyrir frágangi á núverandi innviðum við Saxhól. Um er að ræða áningasvæði með uppsetningu á aðkomupalli við tröppur upp á hólinn auk þess sem göngusvæði meðfram bílastæði verður steinlagt. Einnig verður gengið frá bílastæði með malbikun og almennum yfirborðsfrágangi. Lögð er áhersla að framkvæmd verði lokið fyrir sólmyrkvann þann 12. ágúst nk.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
6.Vallholt 1 - Fyrirspurn vegna breytinga á notkun húsnæðisins, innra skipulagi og útliti þess
2601005
Hafsteinn Ingi Viðarsson sendir inn drög að aðalteikningum í tengslum við fyrirspurn sína frá fundi 198. Þar var óskað eftir afstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar til breytinga á verslunarrými á 1. hæð Vallholts 1 í fjórar 76 fm íbúðir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytta notkun hússins og felur tæknideild að grenndarkynna breytinguna fyrir lóðarhöfum að Brautarholt 2 og 4, Vallholti 2 og 3 og Grundarbraut 28. Áður en grenndarkynning verður framkvæmd þarf að leggja fram skriflegt samþykki eiganda hússins fyrir breytingunum í samræmi við lög um fjöleignahús. Nefndin bendir jafnframt á að samræma þurfi breytinguna heildarútliti hússins.
7.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026
2601006
- Staðan á Sæluhúsinu rædd
- Staðan á eldvarnareftirliti í sveitarfélaginu
- Möguleg frístundasvæði við Hellissand rædd
- Staðan á eldvarnareftirliti í sveitarfélaginu
- Möguleg frístundasvæði við Hellissand rædd
Fundi slitið - kl. 10:25.