Umhverfis- og skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Hellissandur_Tillaga að reitum undir frístundabyggð
2601007
Á 396. fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar þann 3. desember 2025 var tæknideild falið að skoða möguleg svæði á Hellssandi fyrir frístundabyggð.
Kynnt eru þrjú möguleg svæði.
Kynnt eru þrjú möguleg svæði.
Umhverfis-og skipulagsnefnd tekur jákvætt í fyrirliggjandi tillögur og leggur til við bæjarstjórn að svæðin verði skoðuð nánar sem svæði undir sumarhús ætluð fyrir ferðaþjónustu. Nefndin óskar eftir því að svæði suðvestan við Hellu og Hruna verði skoðað nánar.
2.Endurnýjun lóðarleigusamninga á hafnarsvæði Ólafsvíkur
2509016
Lagðar eru fram tillögur að lóðarblöðum fyrir Bankastræti 1 og Bankastræti 3 skv. gildandi deiliskipulagi.
Árið 1996 gerðu eigendur Bankastrætis 1, hér eftir nefnd B1 og Bankastrætis 3, hér eftir nefnd B3, samkomulag um kaup eigenda B1 á hluta lóðar B3 með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Erindið var samþykkt í bæjarstjórn og í framhaldi var stærðum lóðanna breytt hjá Þjóðskrá Íslands. Í deiliskipulagi sem var unnið fyrir hafnarsvæðið og samþykkt í Bæjarstjórn Snæfellsbæjar þann 7. apríl 2016 koma fram breytt lóðarmörk. Í eignaskiptasamningi sem unninn var í ágúst 2000 fyrir B3 er yfirlitsmynd úr gildandi deiliskipulagi, sem þá var í vinnslu, notuð í eignaskiptasamninginn til að sýna afmörkun lóðar. Samkvæmt drögum að lóðablöðum sem nú liggja fyrir munu báðar lóðirnar stækka töluvert. Í ljósi samantektar um málið er tæknideild falið að ganga frá nýjum lóðarblöðum og lóðaleigusamningum við lóðarhafa B1 og B3.
3.Kaldilækur_Umsókn um byggingarleyfi fyrir 68 fm viðbyggingu
2601004
Illugi Jens Jónasson sækir fyrir hönd Sjómannadagsráðs Ólafsvíkur um byggingarleyfi fyrir 68 fm viðbyggingu við Kaldalæk í Sjómannagarðinum í Ólafsvík og færslu á smáhýsi. Viðbyggingin verður úr timbri, bárujárnsklædd og með gluggum í stíl við þá sem eru á Kaldalæk.
Illugi yfirgefur fundinn
Umhverfis og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar. Nefndin bendir á að leita þurfi umsagnar Minjastofnunar.
Illugi kemur aftur inn á fund.
Umhverfis og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar. Nefndin bendir á að leita þurfi umsagnar Minjastofnunar.
Illugi kemur aftur inn á fund.
4.Sjóvörn við Útnesveg og Norðurgarður í Ólafsvík- Umsókn um framkvæmdarleyfi
2601010
Rob Kamsma óskar eftir fyrir hönd Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir sjóvörn við Útnesveg vestan við Ólafsvík. Gert er ráð fyrir 50 m endurbyggingu núverandi grjótfláa og 330 m lengingu, samtals um 380 m.
Einnig óskar hann eftir formlegri afgreiðslu framkvæmdaleyfis fyrir Norðurgarðs.
Einnig óskar hann eftir formlegri afgreiðslu framkvæmdaleyfis fyrir Norðurgarðs.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir bæði verkin.
5.Arnarstapi_Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagni til 12 mánaða
2601009
Filip Procházka sækir fyrir hönd Frista ehf. um stöðuleyfi fyrir matarvagni á Arnarstapa til 12 mánaða. Óskar hann eftir því að fá að vera á sama stað og hann hefur verið undanfarin ár. Fyrirhugað er að selja þar mat og drykk, aðallega fish and chips, quesadillur og súpur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stöðuleyfi matarvagns miðað við núverandi samþykkt. Tæknideild falið að endurskoða samþykkt um götu og torgsölu með tilliti til gildistíma stöðuleyfis.
6.Vallholt 1 - Fyrirspurn vegna breytinga á notkun húsnæðisins, innra skipulagi og útliti þess
2601005
Hafsteinn Ingi Viðarsson sendir inn fyrirspurn þar sem hann óskar eftir afstöðu nefndarinnar á því að neðri hæð Vallholts 1 verði breytt í 4 íbúðir. Íbúðirnar yrðu hver og ein 75 fm að stærð með sérinngangi og tveimur svefnherbergjum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en bendir á að umsækjendur þurfi að leita samþykkis annara eigenda í húsinu fyrir fyrirhuguðum breytingum. Fáist samþykki annara eigenda fyrir breytingunum er umsækjendum bent á ráða þurfi löggildan hönnuð til að vinna verkið. Nefndin bendir á að ef farið verður í fyrirhugað breytingar þurfi Snæfellsbær að grenndarkynna fyrir eigendum aðliggjandi húsa. Fyrir frekari leiðbeiningar er umsækjanda bent á að hafa samband við tæknideild.
7.Kirkjutún 2 - Umsókn um leyfi til niðurrifs
2601002
Snæfellsbær sækir um leyfi til niðurrifs á Átthagastofu Snæfellsbæjar sem staðsett er við Kirkjutún 2.
Umhverfi-og skipulagsnefnd samþykkir erindið að uppfylltum skilyrðum byggingarreglugerðar.
8.Sæluhúsið á Fróðárheiði_Ósk um umsögn Snæfellsbæjar
2601008
Björn Ragnar Lárusson í umboði Vegagerðar óskar umsagnar Snæfellsbæjar um niðurrif sæluhúss á Fróðárheiði. Mannvirkið er illa á sig komið og er hlutverk þess í nútíma þjónustu við ferðalanga liðið sem neyðarskýli. Vegagerðin stefnir á að losa sig við öll mannvirki sem ekki eru nauðsynleg rekstri stofnunarinnar. Bendir Vegagerðin einnig á að ekkert skjal eða skrifleg heimild er fyrir lóðarleigu eða lóðarblaði undir húsnæðinu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltúa ásamt bæjarstjóra að eiga samtal við Vegagerðina um framtíð hússins.
9.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2026
2601006
- Áframhaldandi umræður um húsnæði sem ekki uppfylla öryggiskröfur og rekstrarleyfi. Listi yfir eignir kynntur fyrir nefndinni og næstu skref rædd.
Fundi slitið - kl. 11:45.