Umhverfis- og skipulagsnefnd

193. fundur 16. júní 2025 kl. 11:00 - 13:30 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar
Nefndarmenn
  • Halldór Kristinsson Nefndarmaður
  • Illugi Jens Jónasson Formaður
  • Magnús Eiríksson Nefndarmaður
  • Kristjana Hermannsdóttir Varaformaður
  • Hallveig Hörn Þorbjargardóttir Nefndarmaður
Starfsmenn
  • Matthías Páll Gunnarsson
  • Valgerður Hlín Kristmannsdóttir Ritari
  • Ragnar Már Ragnarsson
  • Smári Jónas Lúðvíksson
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir
Fundargerð ritaði: Valgerður Hlín Kristmannsdóttir Aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Amtmannshúsið á Arnarstapa - Tillaga að nýju deiliskipulagi

2505073

Kristján Eggertsson hönnuður sendir inn tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Amtmannshúsið á Arnarstapa fyrir hönd eigenda. Með nýju deiliskipulagi er skilgreindur byggingarreitur undir vellíðunarhús sem mun hýsa slökunarrými, þurrgufu, heitan pott og verandir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.

2.Deiliskipulag við Fell á Arnarstapa - umræða

2506018

Til umræðu er heildarskipulag fyrir Arnarstapa með áherslu á bílastæði, þjónustu og hleðslustöðvar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd ræddi áherslur í komandi deiliskipulagsvinnu við Fell á Arnarstapa.

3.Snoppuvegur 4 - Ósk um breytingu á lóð

2503015

Á 191. fundi Umhverfis-og skipulagsnefndar var óskað eftir umsögn Hafnarnefndar vegna stækkunar á lóðinni. Hafnarnefnd hefur fjallað um málið og gefgið umsögn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir með Hafnarstjórn.

4.Vallholt 15 - Tilkynning um stækkun á bílastæði og ósk um lækkun gangstéttar

2505037

Hlynur Hafsteinsson óskar eftir því að ný gangstétt verði lækkuð í samræmi við innkeyrsluna en fyrirhugað er að stækka bílastæðið við Vallholt 15.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu en heimilar stækkun á núverandi bílastæði til austurs að lóðarmörkum. Gangstéttarbrún verður tekin niður á allt að 6 metra kafla.

5.Bárðarás 5 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

2505040

Lísa Dögg Davíðsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu sem tengir saman austurálmu húss og bílskúrs að Bárðarási 5.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en óskar eftir málsettri afstöðumynd fyrir grenndarkynningu. Grenndarkynna skal fyrir eigendum að Bárðarási 3, Bárðarási 7, Munaðarhóli 6 og Munaðarhóli 8.

6.Efri Spottar 1 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 84 fm frístundahúsi

2506013

Runólfur Þór Sigurðsson hönnuður sækir fyrir hönd Stefáns Þórðarsonar um byggingarleyfi fyrir því að byggja 84 fm frístundahús á Efri Spottum 1, Ölkeldu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en bendir á að uppfylla þurfi kröfur deiliskipulags um mænisstefnu.

7.Smiðjugata 6 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 221 fm viðbyggingu

2506019

Fannar Þór Þorfinnsson hönnuður sækir fyrir hönd Smiðjunnar Fönix ehf. um byggingarleyfi fyrir 221 fm viðbyggingu við vélsmiðjuna. Viðbygging verður úr stálgrind klædd með yleiningum.
Magnús víkur af fundi.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um uppfyllt skilyrði byggingarreglugerðar.

Magnús kemur aftur inn á fund.

8.Túnbrekka 3 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr

2505057

Eiríkur Leifur Gautsson sækir um byggingarleyfi fyrir bílskúr sem áður var búið að samþykkja árið 2007. Bílskúrinn verður steyptur.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrir um að uppfærðum gögnum sem skilað inn sem uppfylla skilyrði byggingarreglugerðar.

9.Norðurtangi 6a - Umsókn um framkvæmdarleyfi

2506007

Reynir Jónasson sækir um framkvæmdarleyfi fyrir hönd Mílu vegna fyrirhugaðri færslu á símstöð Mílu í Ólafsvík. Framkvæmdin felur í sér jarðvinnu þar sem grafa þarf skurði, þvera götur og opna holur til að koma stofnstrengjum yfir í nýja staðsetningu símstöðvar að Norðurtanga 6a. Áætlaður verktími er í ágúst 2025.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið og óskar eftir að verkið verði unnið í samráði við tæknideild Snæfellsbæjar.

10.Skipulag skógræktar - leiðbeiningar

2506017

Sveinn Runólfsson sendir inn bréf fyrir hönd stjórnar Vina íslenskrar náttúru þar sem kynntar eru leiðbeiningar um val á landi til skógræktar.
Erindið kynnt.

11.Önnur mál - Umhverfis- og skipulagsnefnd 2025

2412010

- Listaverk eftir Hörð Rafnsson kynnt og möguleg staðsetning við Tröð rædd

Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við staðsetningu verksins.





Fundi slitið - kl. 13:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?