Umhverfis- og skipulagsnefnd

60. fundur 26. júlí 2016 kl. 10:20 - 10:20

60. fundur

umhverfis- og skipulagsnefndar

haldinn í Röst,

þriðjudaginn 29. mars 2011 og hófst hann kl. 12:00

Fundinn sátu:

Sigurjón Bjarnason, Jónas Kristófersson, Drífa Skúladóttir, Svanur Tómasson, Sturla Fjeldsted,

Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , Byggingarfulltrúi

 

Dagskrá: 1. 1102007 - Nýtt deiliskiipulag fyrir íbúðarhús á og við Selhól, Hellissandi, Snæfellsbæ.

Kynnt er tillaga að deiliskipulagi fyrir íbúðarhús á og við Selhól, Hellissandi. uppdráttur dags. 23.03.2011. Á fyrirhuguðu deiliskipulagssvæði er annars vegar gert ráð fyrir þyrpingu 7 einbýlishúsalóða, auk einnar lóðar fyrir parhús. Hins vegar er gert ráð fyrir tveimur einbýlishúsalóðum við Snæfellsás.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsaa tillöguna samkv. 41. gr. skipulagslaga.

 

2. 1103002 - Norðurgarður 8 - breyting á hurð.

Andrinn ehf óskar eftir leyfi til að setja hurð á verbúð sína við Norðurgarð 8. Meðfylgjandi er undirskriftir meðeiganda.

Tekið var jákvætt í erindið þann 27. júní 2006, en þá vantaði undirskriftir meðeigenda.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.

 

3. 1103007 - Keflavíkurgata 2 - Skilti.

Sótt er um leyfi til að setja upp skilti á Grunnskóla Snæfellsbæjar, Hellissandi samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.

 

4. 1103005 - Ennisbraut 11 - skilti.

Sótt er um leyfi til að setja upp skilti á Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ólafsvík samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.

 

5. 1003029 - Plássið Laugarbrekku - Umsókn um byggingarleyfi.

Ólafur Haukur Símonarsson, kt. 240847-2649, sækir um að setja upp vegg í forrými mennigarmiðstöðvarinnar að Hellnum þannig að myndist bakrými og aðstaða starfsmanna í tengslum við bráðabirgðaeldhús. Rýmið opnast út í forrými Mennigamiðstöðvar. Breytingin er gerð eftir ráðleggingu Vinnueftirlits ríkisins.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.

 

6. 1103009 - Mýarholt 5 - Klæðning.

Dorota Pietrzyk, kt. 220869-2299, sækir um leyfi til að klæða efri hæð, hægra megin með bárujárni. Með erindinu bárust 2 útgáfur af teikningum báðar dagsettar 17/9 2010, nefndin getur því ekki tekið afstöðu til málsins. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar í fyrri afgreiðslur um að koma húsinu í fyrra horf.

 

7. 0904001 - Hafnargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi.

Björgunarsveitin Lífsbjörg leggur fram nýjar teikningar fyrir milliloft í sal, dags. í mars 2011. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir teikningar vegna millilofts dags. í mars 2011.

 

8. 0907004 - Sölvaslóð 1 - Umsókn um leyfi fyrir gáma á lóðinni Sölvaslóð 1.

Jóhann Jónsson, sækir um að framlengja stöðuleyfi fyrir gám að Sölvaslóð 1, Arnarstapa.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir gám að Sölvalóð 1 til 30. september 2011.

 

9. 1103011 - Slitvindastaðir - niðurrif.

Guðrún Sigurðardóttir, kt. 110536-3569 óskar eftir leyfi til að rífa íbúðarhús, hlöðu, fjós og skúr í landi Slitvindastaða. Húsin hafa ekki verið notðu síðan 1983 og eru mjög illa farin. Fastanúmer eigna: Íbúðarhús 211-3774, fjós fastanúmer 211-3772, matshluti 03, hlaða fastanúmer 211-3772, matshluti 07 og skúr fatsnúmer 211-3772, matshluti 10.

Umhverfis - og skipulagsnefnd samþykkir erindið.

 

10. 1103003 - Norðurgarður 8 - rekstur.

Guðrún Gísladóttir óskar eftir leyfi til að hefja rekstur á reykingu sjávarafurða að Norðurgarði 8, Rifi. Um er að ræða fullvinnslu á reyktum fiski til manneldis.

Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu og óskar eftir frekari gögnum um málið.

 

11. 1103004 - Brautarholt 26 - Hárgreiðslustofa.

Irma Dögg Toftum, kt. 260583-3799, sækir um leyfi til að reka hárgreiðslustofuna Irmu á n.h. að Brautarholti 26. Meðfylgjandi er samþykki nágranna ásamt teikningu dags.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.

 

12. 1103006 - Engihlíð 18 - gervihnattadiskur.

Jolanta Wolynska, kt. 180892-4199, óskar eftir leyfi fyrir gervihnattadisk að Engihlíð 18, 1. hæð.

Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem ekki liggur fyrir samþykki húseigenda.

 

13. 1103008 - Engihlíð 1 - Skotkassi.

Knattspyrnudeild UMF Víkings óskar eftir leyfi og tillögu að staðsetningu fyrir skotkassa 6 x 6m að stærð við lóð íþróttavallar. Skotkassinn væri notaður við spyrnuæfingar hjá Víking.

Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar erindinu meðan svæðið er skoðað nánar.

 

14. 1103010 - Æfingaraðstaða Við Ólafsbraut.

Sólarsport sækir um leyfi til að setja upp æfingaraðstöðu á lóð bakvið N1 í Ólafsvík, sem er í eigu Snæfellsbæjar. fyrirhugað er að setja upp 6 staura í röð samkv. meðfylgjandi teikningu.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið. Staðsetning verður í samráði við byggingarfulltrúa.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:38

___________________________ ________________

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?