Umhverfis- og skipulagsnefnd

70. fundur 26. júlí 2016 kl. 10:03 - 10:03

Umhverfis- og skipulagsnefnd - 70. fundur umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar, mánudaginn 23. apríl 2012og hófst hann kl. 12:00.

Fundinn sátu:

Sigurjón Bjarnason formaður, Bjarni Vigfússon nefndarmaður, Pétur SteinarJóhannsson nefndarmaður, Drífa Skúladóttir nefndarmaður, SvanurTómasson embættismaður og Sturla Fjeldsted nefndarmaður.

Fundargerð ritaði: Smári Björnsson, byggingarfulltrúi.

 

Dagskrá:

1. 1204007 - Breyting á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar 1995-2015 vegna lagningu jarðstrengs og ljósleiðara. Kynning á lýsingu.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir lýsingu fyriraðalskipulagsbreytinguna og vísar málinu til samþykktar hjá bæjarstjórn.

2. 1203005 - Deiliskipulag fyrir Nes, land úr Bárðarbúð.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir breytinguna og heimilar auglýsing á deiliskipulaginu.

3. 1204008 - Fyrirspurn um breytingu á skipulagi Snæfellsbæjar fyrir frístundahús á Hellnum.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar hafnar því að farið verði í breytingu á aðalskipulagi vegna þessara lóðar en vísar málinu til skoðunar við heildar endurskoðun á aðalskipulagi Snæfellsbæjar.

4. 1204002 - Umsókn um byggingarleyfi viðbyggingu við Álfaslóð 9.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.

5. 1204006 - Sótt eru leyfi til að byggja heitan pott við Lýsuhólslaug.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið með þeim skilyrðum að málið verði í unnið í samráði við byggingarfulltrúa,heilbrigðisfulltrúa og vinnueftirlit.

6. 1204010 - Sótt er um leyfi til að klæða hús og breyta gluggum, samkvæmt teikningu.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið en beinir þeim tilmælum að úr svefnherbergjum verði komið fyrir flóttaleiðum í gegnum glugga samkvæmt reglugerð.

7. 1203004 - Hafnarbakki Rifi ósk um byggingarleyfi.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið með skilyrðum að eldvarnareftirlit samþykki innsendar teikningar, einnig þá verði að senda teikningar af heildarhúsnæði með brunavörnum til byggingarfulltrúa.

Fyrir liggur nágranna samþykki fyrir stækkun.

Málinu er vísað til umsagnar hjá Hafnarnefnd Snæfellsbæjar.

8. 1204012 - Sótt er um leyfi til uppsetninga á Varmadælum við stofnannir Snæfellsbæjar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.

9. 1204005 - Stöðuleyfi fyrir gámaskúr við Grundarslóð 4.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.

10. 1204011 - Sótt er um stöðuleyfi fyrir hjólhýsi í 4 mánuði við Grundarslóð 10, Arnarstapa.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir stöðuleyfi fyrir hjólhýsin í 4 mánuði.

11. 1204001 - Fyrirspurn vegna byggingu Hótels við Menningarmiðstöð á Hellnum.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar getur ekki tekið afstöðu til málsins að svo stöddu. Farið verður í vettvangsferð og svæðið skoðað. Ennfremur óskar nefndin eftir frekari gögnum um málið eins og t.d. 3 víddar teikningu af húsi með helstu ásýndum.

12. 1204004 - Fyrirspurn um stækkun Hótel Búða.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar tekur jákvætt í stækkun við Búðir, en áður en endanleg ákvörðun verður tekin ætlar nefndinn að skoða svæðið og afla frekari gagna um málið.

13. 1204009 - Sótt er um samþykki á reyndarteikningum fyrir Snæfell félagsheimili.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið en vísar málinu til eldvarnareftirlits til samþykkis.

14. 1204003 - Brúarholt 5, umsókn um breytingu á lóð og bílastæði.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar samþykkir erindið.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:32.

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?