Röskun á umferð í Ólafsvík miðvikudaginn 5. júní

Miðvikudaginn 5. júní frá kl. 9:00 – 10:00 má reikna með umferðartruflunum í Ólafsvík vegna afmælishátíðar Grunnskóla Snæfellsbæjar.

Nemendur og starfsfólk Grunnskóla Snæfellsbæjar halda upp á 20 ára afmæli skólans og hefur verið skipulögð skrúðganga í tilefni tímamótanna á fyrrgreindum tíma.

Skrúðganga hefur áhrif á umferð við eftirfarandi götur frá kl. 9:00 - 10:00:

  • Engihlíð
  • Brúarholti
  • Grundarbraut
  • Ólafsbraut
  • Ennisbraut

Að skrúðgöngunni lokinni fara nemendur í ratleik sem dreifist um bæinn, fram að hádegi.

Það er von okkar að hátíðahöldin valdi ekki mikilli truflun.