Snæfellsjökulshlaupið

Snæfellsjökulshlaupið Snæfellsjökulshlaupið verður haldið 20. júní n.k og verður þetta í fimmtánda skiptið sem hlaupið er haldið. Fjöldi þátttakenda takmarkaður við 350 manns. Þar sem upphafsstaður hlaupsins er rúmgóður verða allir ræstir í einu. Mælst er til að hröðustu hlaupararnir séu fyrstir í ræsingu. Drykkjastöðvarnar verða tvær. Þar verður boðið upp á vatn og orkudrykk. Við mælum með því að hlauparar séu með eigin drykkjarílát, umhverfisvæn pappaglös verða í boði fyrir þá sem þurfa. Vegleg útdráttarverðlaun verða í boði. Allir þátttakendur fá smá glaðning í poka að hlaupi loknu. Hlaupaleiðin Hlaupaleiðin er um 22 km og er stór hluti hennar malarvegur. Fyrstu 8 km þarf að hlaupa upp í móti í c.a. 700 – 750 m hækkun. Eftir það fer hlaupaleiðin að lækka þar til komið er til Ólafsvíkur þar sem endamarkið er. Hlauparar eiga von á að þurfa kljást við snjó og drullu frá 1 km til 7 km af leiðinni, það eftir því hvað veturinn hefur verið snjóþungur. Hlauparar fá á leiðinni að upplifa einstaka náttúrufegurð og að öllu ógleymdu allri þeirri orku sem Snæfellsjökull býr yfir. Tvær drykkjarstöðvar verða á leiðinni á c.a. 7,5 km millibili sem Björgunarsveitin Lífsbjörg mun sjá um. Á Arnarstapa verður bíll þar sem hlauparar eiga kost á að skilja eftir auka hluti og fatnað sem verður afhendur í Íþróttahúsinu í Ólafsvík. Einnig verður tekið við fatnaði við drykkjarstöðvarnar ef þess þarf. Allur fatnaður og búnaður verður afhentur í Sjómannagarðinum að hlaupi loknu. Staður og tímasetning Hlaupið verður ræst kl 12:00 frá Arnarbæ (Svartur torfbær) við veginn á Arnarstapa þaðan sem hlaupið er yfir Jökulháls til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi. Rúta verður í boði fyrir þá sem vilja frá Ólafsvík til Arnarstapa og mun hún leggja af stað kl. 10:45 frá íþróttahúsinu í Ólafsvík og kostar 2.500 kr. Ólafsvík er um 2,5 klst. akstur frá Reykjavík. Skráningargjald Þátttökugjald í skráningu er 8.000 kr. Hægt er að afskrá sig og fá endurgreiðslu þar til 10 dögum fyrir mót, eftir það er þátttökugjald ekki endurgreitt. Aldursflokkar 60 og eldri 50 - 59 ára 40 - 49 ára 39 ára og yngri Verðlaun Verðlaun verða veitt fyrir bestu tímanna í hverjum flokki og einnig verður fjöldi útdráttarverðlauna. ITRA Hlaupið veitir ITRA stig - ITRA Nánari upplýsingar Ingunn Ýr Angantýsdóttir s:858 7670 og netfangið sjhlaup@gmail.com Sigrún Ólafsdóttir s:8942446 og netfangið sjhlaup@gmail.com
Getum við bætt efni þessarar síðu?