Skemmtikvöld K100 í Röstinni

Við elskum Ísland ferðalag K100 heldur áfram og næsti viðkomustaður er Hellissandur 11. - 12. júlí.

Skemmtikvöld Ísland vaknar er 11. júlí kl. 20:00 og verður haldið í félagsheimilinu Röst. Þar munu Bolli, Þór og Stína bjóða uppá Live show - pöbbkviss og margt fleira.
Vinningarnir ekki af verri endanum!

Heppnir aðilar sem mæta á svæðið fara ekki tómhentir heim. Fyrsti „hlustandinn“ fær veglegan glaðning frá Símanum en einnig eru í boði gjafabréf frá N1 og fleiri styrktaraðilum, kynnum vinningana nánar þegar nær dregur.
 
Bolli, Þór og Kristín verða í banastuði og hvetjum við alla til að mæta á svæðið og taka þátt í gleðinni með okkur.
 
Að sjálfsögðu er frítt inn.
Getum við bætt efni þessarar síðu?