Opinn íbúafundur vegna vinnu við fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar 2027
17. nóvember
20:00
Félagsheimilið Klif
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar boðar til opins íbúafundar í Félagsheimilinu Klifi þriðjudaginn 17. nóvember.
Tilgangur fundarins er að eiga samtal við íbúa vegna fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar 2027 og kynna það helsta sem liggur fyrir í framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins. Er það vilji bæjarstjórnar að gefa íbúum tækifæri til að koma ábendingum og skoðunum á framfæri.
Það verður heitt á könnunni og eru eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í uppbyggilegu samtali um fjárhagsáætlun næsta árs.
Íbúafundur verður sem hér segir:
Staðsetning: Félagsheimilið Klif.
Tímasetning: Þriðjudagur 17. nóvember 2026 kl. 20:00.
Fundurinn er opinn öllum og verður kaffi og konfekt í boði.