Opið hús hjá listamönnum í Saltporti
11. september
14:00 - 17:00
Saltport
Opið hús verður í Saltporti á Hellissandi föstudaginn 11. september frá kl. 14 - 17.
Listamennirnir sem dvelja þar um þessar mundir heita Gerhard König og Simone Litschka og taka þau vel á móti gestum og gangandi ásamt húsráðendum, Árna og Steingerði.
Þess má geta að Gerhard var sæmdur íslenskra riddarakrossinum af forseta Íslands í júlí 2024 fyrir störf sín í þágu varðveislu íslenskrar menningarsögu. Hann hefur í yfir aldarfjórðung unnið sleitulaust og að miklu leyti í sjálfboðavinnu að endurreisn og varðveislu hins einstaka listasafns og steyptu listaverka Samúels Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði.
Áhugasamir hvattir til að mæta á opið hús nk. föstudag frá kl. 14 - 17.