Halloweenpartý í Röstinni
Nú er komið að því að bjóða krökkunum í skemmtilegt og örlítið draugalegt Halloweenpartý!
Fimmtudaginn 5. nóvember ætlum við að halda Halloweenpartý í Félagsheimilinu Röst þar sem verður nóg um að vera og vonandi fullt af fjöri, hlátri og smá hrolli!
- 1.-4. bekkur: Opið frá kl. 16:30-17:30.
- 5.-7. bekkur: Opið frá kl. 17:30-18:30.
Á dagskrá verður meðal annars:
- Draugahús fyrir þau sem þora!
- Föndur og sköpun
- Grasker
- Skemmtilegir leikir
- Sjoppa
Við hvetjum krakkana til að mæta í Halloweenbúningum ef þau vilja, en það er að sjálfsögðu ekkert skilyrði.
Allur aldur er velkominn! Foreldrar, systkini, ömmur og afar eru líka hjartanlega velkomin að kíkja við og taka þátt í gleðinni.
Viðburðurinn er samstarfsverkefni Félagsmiðstöðvarinnar Afdreps, nemendaráðs Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ungmennaráðs Snæfellsbæjar og menningarnefndar.
Við hlökkum mikið til að sjá sem flesta og eiga saman skemmtilega og draugalega stund!
Með draugalegri kveðju,
Starfsfólk Félagsmiðstöðvarinnar Afdreps og samstarfsaðilar