Fjallkonan
14. júní
12:00
við Pakkhúsið
Aflraunakeppnin Fjallkonan verður haldin á Snæfellsnesi 14. og 15. júní nk.
Keppt verður í Snæfellsbæ laugardaginn 14. júní og hefjast leikar kl. 12:00 við Pakkhúsið. Seinni keppnisdagur fer fram í Stykkishólmi.
Keppnin var fyrst haldin í fyrra þar sem margar af sterkustu konum landsins tóku á honum stóra sínum. Mikil ánægja var með keppnina og er hún nú haldin í annað skipti. Fleiri keppendur eru skráðir til leiks í ár og engu til sparað í undirbúningi vegna keppnarinnar.
Öll áhugasöm hvött til að taka daginn frá og styðja þessar hraustu konur áfram.