Bókaveisla Grunnskóla Snæfellsbæjar í Klifi
18. nóvember
20:00
Félagsheimilið Klif
Bókaveisla Grunnskóla Snæfellsbæjar verður haldin í Félagsheimilinu Klifi miðvikudaginn 18. nóvember og hefst kl. 20:00.
Nemendur úr 10. bekk við Grunnskóla Snæfellsbæjar kynna höfunda. Aðgangur ókeypis.
Eftirfarandi höfundar lesa úr bókum og árita fyrir áhugasama:
- Eva Björg Ægisdóttir - Þau sem urðu eftir
- Þorgrímur Þráinsson - Ég kom til að gráta
- Guðni Th. Jóhannesson - Vald hinna veiku
- Arndís Þórarinsdóttir - BABB
Öll velkomin.
