Aðventugleði í Snæfellsbæ
26. nóvember
16:00
Jólaandinn mun svífa yfir Snæfellsbæ 26. nóvember þegar þjónustuaðilar bjóða til árlegrar aðventugleði í aðdraganda jóla.
Mikið líf hefur verið á þessum skemmtilega viðburði síðustu ár og farin að skapast yndisleg hefð þar sem gleðin er við völd og hringir inn jólin hér í heimabyggð.
Auk þess heldur Kirkjukór Ólafsvíkur jólatónleika í Ólafsvíkurkirkju sem hefjast kl. 20:00 sama dag.