Sjónarhóll Trail Run 2026
8. ágúst
12:00 - 16:00
Útgerðin Hellissandi
Sjónarhóll Trail Run verður haldið laugardaginn 8. ágúst, 2026. Hlaupið hefst á Hellissandi og liggur hlaupaleiðin m.a. á fornri gönguleið, upp á Sjónarhól og til baka á Hellissand, 21 km. Hlaupið hentar byrjendum í hlaupi sem og reyndum hlaupurum.
Staðsetning: Hellissandur
Tímasetning: Kl. 12:00, laugardaginn 8. ágúst 2026
Hlaupaleið: Byrjar við Útgerðina á Hellissandi, liggur gegnum Prestahraun, Eysteinsdalsleið og upp á Sjónarhól (400 m hæð) og til baka. Hlaupið er á malarvegi 60%, graslendi 20% og hrauni 20%. Almennir hlaupaskór duga vel en ekki verra ef sóli er grófur.
Vegalengd: 21 km
Hækkun: 457 m.
Tímamörk: 4 klst. (rásmark lokar kl. 16:00)
Verðlaun: Verðlaun afhend fyrir efstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki fljótlega eftir að fyrstu keppendur koma í mark. Allir sem koma í mark eiga möguleika á veglegum útdráttarverðlaunum.
ITRA stig: Hlaupið gefur ITRA stig.
Afhending gagna
Hlaupagögn verða afhend í Útgerðinni 7. ágúst frá kl. 17:00-19:00 og á hlaupadegi þann 8. ágúst frá kl. 9:00 til 11:30. Einnig verður í boði að nálgast hlaupagögn frá kl. 15-18 í Reykjavík (nánar auglýst síðar). „Trakk“ af leiðinni fyrir síma eða úr verður sent út fyrir hlaup.
Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt verður að gera nafnabreytingar til 31. júlí 2026. Skráningu lýkur 8. ágúst eða þegar hlaupið er orðið fullt.
Brautarvarsla og merkingar
Leiðin verður merkt á áberandi hátt og verður tímatökuhlið staðsett á toppi Sjónarhóls. Vegna öryggis og brautarvörslu er mikilvægt að allir hlauparar hlaupi í gegnum hliðið en varsla verður á toppi Sjónarhóls ásamt ljósmyndara.
Verð: 9.000 kr. (Verð til 30. júní 2026)
11.000 kr. (Fullt verð)
Innifalið í skráningu:
Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
Buff með merki hlaupsins
Drykkjarstöðvar við Rauðhól (7 og 14 km)
Keppendur fá frítt í sund í sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík á hlaupadegi.
Þurrsalerni á staðnum ásamt salernisaðstöðu í Útgerðinni
Ljósmyndari á Sjónarhóli
Grill fyrir keppendur að loknu hlaupi við Útgerðina á Hellissandi
Sjúkragæsla við mark
Allir þátttakendur hlaupa á eigin ábyrgð.
Upplýsingasíður:
Facebook síða: https://www.facebook.com/profile.php?id=61585845988991
Instagram síða: Sjónarhóll Trail Run
Skipuleggjendur hlaupsins: Hlaupahópur Snæfellsbæjar. Nánari upplýsingar fást í netfanginu hlaupahopursnb@gmail.com
Ari Bent Ómarsson s. 866-6939 ari.bent@gamail.com
Helga Jóhannsdóttir s. 847-0194 helgajoh22@gmail.com