Næring sem nærir - opinn fyrirlestur

Hvað ef betri næring gæti gjörbreytt orku þinni, líðan og gleði í daglegu lífi?

Velferðarnefnd og öldungaráð taka höndum saman og bjóða upp á fyrirlesturinn Næring sem nærir í Félagsheimilinu Klifi miðvikudaginn 13. maí kl. 17:00.

Fyrirlesari er næringarfræðingurinn Elísabet Reynisdóttir. Hún er næringarfræðingur með meistaragráðu, næringarþerapisti frá CET og víðfrægur fyrirlesari sem hefur leiðbeint þúsundum í átt að sterkari heilsu og bættri líðan. Hún þekkir áskoranir af eigin raun eftir alvarleg veikindi og hefur byggt upp aðferðir sem virka og hún miðlar í fyrirlestrum og námskeiðum.

Fyrirlesturinn er í boði velferðarnefndar og öldungaráðs. Allir velkomnir.

Getum við bætt efni þessarar síðu?