Kvöldsundstund í Sundlaug Snæfellsbæjar
24. júní
20:00 - 22:00
Sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík
Notaleg kvöldsundstund í Sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík að Ennisbraut 11. Kvöldopnun á milli kl. 20:00 - 22:00. Hressandi drykkur úr héraði, notaleg tónlist og nærandi samvera. Í lauginni eru tveir infra rauðir klefar, sánaklefi, kaldur pottur bæði úti og inni og heitur pottur inn, sundlaug inni, rennibraut úti og tveir heitir pottar úti. Nóg til að njóta 
*Þessi viðburður er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn er hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.