Íbúafundur vegna endurskoðunar menntastefnu Snæfellsbæjar
Nú stendur yfir endurskoðun á menntastefnu Snæfellsbæjar og boðað er til íbúafundar vegna málsins.
Verkefnið er að greina stöðu í mennta- og uppeldisstarfi í sveitarfélaginu og móta framtíðarsýn til næstu ára með skýrri stefnu og innleiðingaráætlun.
Rík áhersla er lögð á samráð við stjórnendur, starfsfólk, nemendur, foreldra, kjörna fulltrúa og aðra íbúa sveitarfélagsins við endurskoðun stefnunnar. Opið ferli og samtal við samfélagið er mikilvægt svo vel takist til við mótun stefnu og innleiðingu enda er slíkt grundvöllur þess að sem mest sátt ríki um stefnuna.
Í ljósi þess boðar stýrihópurinn til opins íbúafundar þar sem öllum sem hafa áhuga á málefninu gefst kostur á að leggja sitt af mörku við áherslu nýrrar menntastefnu.
Íbúafundur verður sem hér segir:
Tímasetning: Miðvikudagur 11. febrúar 2026 kl. 17:30.
Dagskrá fundar:
- Kynning - Gerð og mikilvægi menntastefnu sveitarfélaga
- Hópavinna - Styrkleikar, veikleikar, ógnanir, tækifæri ofl.
- Lokaorð og næstu skref.
Að loknum íbúafundi verður einnig hægt að koma ábendingum og tillögum á framfæri við stýrihópinn á heimasíðu Snæfellsbæjar.
stýrihópur um endurskoðun menntastefnu Snæfellsbæjar