Glóandi Jökull - glerhátíð
24júní - 19júlí
Hellissandur
Hátíðin verður sett 24. júní og stendur til 19. júlí á Hellissandi. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin. Í heilan mánuð verður boðið upp á fjölbreyttar sýningar og viðburði sem hverfast um bráðið gler. Hjarta hátíðarinnar verður færanlegi bræðsluofninn Niesenglass NG40 sem gerir lifandi glerblástur mögulegan á þessum fallega stað við rætur Snæfellsjökuls.
Við opnun 24. júní verður alþjóðleg samsýning þar sem verk listamanna frá Íslandi, Danmörku, Tékklandi, Sviss, Þýskalandi, Írlandi og Bretlandi verða sýnd í bænum. Sýningarstjóri er heimamaðurinn og listamaðurinn Bjarni Sigurbjörnsson.
Þrjár einkasýningar munu sameina sýningu, gjörning og lifandi sköpun. Þannig munu sýningarnar þróast og taka breytingum yfir hátíðina. Einkasýnendur eru Louise Lang (DE), Laura Sonne (DK) og Fiona Byrne (IRE).
Boðið verður upp á röð fyrirlestra og sýnikennslu með þátttöku gesta, listamanna og handverksfólks, meðal annars frá Reykjavík Glass og Niesenglass. Gestir fá m.a. að upplifa sérstakt „Glerævintýri“ þar sem þeir fá tækifæri til að prófa glerblástur sjálfir.