Á milli staða í náttúru Grænlands - Ljósmyndasýning

Á milli staða í nátttúru Grænlands - Ljósmyndasýning eftir Jóhönnu Ómarsdóttur áhugaljósmyndara, opnar laugardaginn 18. apríl kl. 13:00 í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla.
 
Ljósmyndirnar voru teknar við Qooroq ísfjörð á suðurströnd Grænlands 2006. Til að komast á milli þeirra bæja sem eru við fjörðinn þarf að ferðast með bát eða þyrlu. Myndirnar voru teknar í einni slíkri bátsferð á milli stærstu bæja strandarinnar Qaqortoq og Narsaq. Við fjöruborð þeirra og einnig í ferð upp á Grænlandsjökul.
 
Öll hjartanlega velkomin.
 
Léttar veitingar í boði.
Getum við bætt efni þessarar síðu?