Sumarstörf fyrir eldri ungmenni

Sækja um starf
Umsóknarfrestur frá:
20.03.2026
Umsóknarfrestur til:
29.04.2026
Tengiliður:
smarijonas@snb.is

Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum á, öllum aldri, með verkvit til að leiðbeina og vinna með krökkum í vinnuskóla og sumarvinnu við allskonar útivinnu. Starfið hefur það að leiðarljósi að leiðbeina ungmennum Snæfellsbæjar við fyrstu skrefin í atvinnulífinu og í leiðinni fegra bæinn okkar.


 Kröfur til Flokkstjóra

  • Um er að ræða 100% störf í þrjá mánuði, frá maí 2026.
  • Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.
  • Umsækjendur þurfa að vera duglegir, áhugasamir um útivinnu, tóbakslausir í vinnu, sjálfstæðir og góðar fyrirmyndir.
  • Umsækjendur þurfa að vera færir um að stýra vinnuflokk og hafa áhuga á að vinna með og fræða unglinga.
  • Góð færni í Íslensku.
  • Þekking á staðháttum í sveitarfélaginu er æskileg.


Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2026. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum.

Getum við bætt efni þessarar síðu?