Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga óskar eftir að ráða í sumarafleysingar í þjónustuíbúðakjarna fyrir fatlaða í Ólafsvík.
Um er að ræða vaktavinnu frá byrjun júní til lok ágúst.
Hlutverk:
Meginverkefni þjónustunnar er stuðningur- og hæfing íbúa til sjálfstæðrar búsetu og aukinnar virkni í daglegu lífi, menningu og félagslífi. Virða ber sjálfræði íbúa og hafa velferð þeirra að leiðarljósi í allri þjónustu. Störf starfsmanna í búsetu geta verið talsvert mismunandi vegna ólíkra þarfa íbúa.
Kröfur:
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, þekking á málaflokknum og á sviði félagaslegrar þjónustu er kostur
Stundvísi, hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, samkennd og samstarfshæfni
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði og skipulagshæfni
Viðkomandi þarf að vera 18 ára eða eldri
Íslenskukunnátta skilyrði
Hreint sakavottorð